Ægir - 01.09.1992, Blaðsíða 48
488
ÆGIR
9/92
NÝ fi
F/SKÍSK/P V. \Jj
Vigri RE 71
25. september var Vigri RE afhentur frá Fiekkefjord
Slipp & Maskinfabrikk A/S, Fiekkefjord í Noregi, en
skipið kom til heimahafnar 7. október. Skipið er ný-
smíði nr. 145 hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk,
en skrokkur skipsins er smíðaður hjá Kvina Verft.
Skipið er hannað af Skipsteknisk A/S í Noregi.
Vigri RE er átjándi skuttogarinn sem stöðin smfðar
fyrir íslendinga, og er þá ótalinn einn skuttogara-
skrokkur fyrir innlenda aðila. Skrokkar allra þessara
skuttogara eru smíðaðir hjá Kvina Verft í Flekkefjord,
sem annast hefur þann þátt fyrir stöðina.
Vigri RE er frystitogari með búnað til flakavinnslu,
og er fyrsta fiskiskipið hérlendis með sjálfvirkan frysti-
búnað frá Kværner-Odim (sjá umfjöllun f þessu tölu-
blaði). Skipið er jafnframt skrokkstærsta fiskiskip flot-
ans, um 30% stærra en þau stærstu til þessa, og með
mestu breidd (13.00 m). Vigri kemur í stað tveggja ís-
fisktogara útgerðarinnar, Vigra RE (1265) og Ögra
RE (1268), sem fara til annarra útgerða, sem úrelda á
móti önnur skip. Þau skip sem hverfa úr rekstri eru
skuttogararnir Ásgeir RE (1505), Skagfirðingur SK 4
(1285) og Krossnes SH (1605).
Vigri RE 71 er í eigu Ögurvíkur hf. Skipstjóri er
Steingrimur Þorvaldsson og yfirvélstjóri Jón Bjarna-
son. Framkvæmdastjóri útgerðar er Gísli Jón Her-
mannsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Lloyd's Register of Shipping í flokki
* 100 A1, Stern Trawler, lce 1 D, * LMC (skrokkur
lce 1 B). Skipið er skuttogari með tveimur þilförum
milli stafna, perustefni, skutrennu upp á efra þilfar,
hvalbak á tveimur hæðum á fremri hluta efra þilfars
og íbúðarhæð og brú aftantil á efra hvalbaksþilfari
(bátaþilfari).
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; þurrrými (vél-
búnaður o.fl.); fiskilest með botngeymum fyrir
Mesta lengd.......................... 66.96 m
Lengd rnilli lóðlína (HVL)........... 59.40 m
Lengd milli lóðlína (perukverk).... 58.70 m
Breidd (mótuð)....................... 13.00 m
Dýpt aó efra þilfari.................. 8.57 m
Dýpt að neðra þilfari................. 5.97 m
Eigin þyngd........................... 2201 t
Særými (djúprista 5.97 m)............. 3103 t
Burðargeta (djúprista 5.97 m)...... 902 t
Lestarrými (undirlest)................ 1070 m’
Lestarrými (milliþilfarslest).......... 180 nr
Brennsluolíugeymar (svartolía)..... 373.5 m
Brennsluolíugeymar (gasolía)....... 132.9 m
Ferskvatnsgeymar...................... 76.6 m
Sjókjölfestugeymir.................... 66.8 m
Andveltigeymir (sjór)................. 29.9 m
Brúttótonnatala....................... 2157 ^
Rúmlestatala.......................... 1216 Brl
Ganghraði (þjónustuhraði).......... 14 hp
Skipaskrárnúmer....................... 2184
brennsluolíu og hágeymum fremst í síðum
brennsluolíu; vélarrúm með kælivélarrými tfem-
s.b.-megin og vélgæsluklefa b.b.-megin og I3®1'!
geymum í síðum fyrir ferskvatn o.fl.; og aftast s
geyma fyrir brennsluolíu, ásamt set- og daggeym
Öftustu botngeymar undir lest eru skiptigeV
(brennsluolía/sjókjölfesta).
Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir sjókjöl e
og keðjukassar, en þar fyrir aftan lestarrými (L ^
búðalest), þá vinnsluþilfar með fiskmóttöku aftast o
geymum fyrir ferskvatn þar undir. Aftan við fisk11 ^
töku er stýrisvélarrými. S.b.-megin við móttöku ^
stýrisvélarrými er vélarreisn og verkstæði, en •
megin vélarreisn ásamt ketilrými og hjálpa'v ^
rými. B.b.-megin á vinnsluþilfari er stigahus,
tengir saman íbúðir á efra þilfari-og vélarúm, a
skrifstofu. 0.
Á efra þilfari eru þilfarshús meðfram báðurn
um, að mestu samfelld, og togþiIfarió þar a 1
með lokuðum gangi framantil (opinn að a