Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Page 9
Sveinn Björnsson, forscti fslands
3
yfirréttar-málflutningsmaður. Fékk hann brátt mikið að
starfa sem málflutningsmaður, enda var hann einkar vel
til þess starfs fallinn, og þótti hverju máli vel borgið, er
hann tók að sér. Finnst mér vel eiga við Svein Björnsson
Jýsingin í Njálu á Njáli Þorgeirssyni: „Hann var lögmaðr
svo mikill, at engi fannst hans jafningi. Vitr var hann ok
íorspár, heilráðr ok góðgjarn, ok varð alt at ráði, þat er
hann réð mönnum, hógvær ok drenglyndr. Hann leysti
hvers manns vandræði, er á hans fund kom.“
Þegar Hæstiréttur var fluttur hingað til landsins með
sambandslögunum 1918, varð Sveinn Björnsson, ásamt Egg-
erti sáiuga Claessen, fyrstur manna til að ljúka prófraun
hæstaréttarmálflutningsmanna. Á fyrstu árum Sveins
Björnssonar sem málflm. gekkst hann ásamt Eggerti
Claessen o. fl. fyrir stofnun stéttarfélags málflutnings-
manna. Var það félag stofnað 11. des. 1911 og nefndist
lúáiflutningsmannafélag Islands, en heitir nú Lögmanna-
félag Islands. Tilgangur félagsins var, að ég hygg, ekki
iyrst og fremst sá að gæta fjárhagslegra hagsmuna fé-
iagsmanna, heldur hins, að gæta heiðurs og sæmdar stétt-
arinnar. Þetta var Sveini Björnssyni hjartans mál og í
þeim anda hefir félagið nú starfað í þau 40 ár, sem liðin
ciu frá stofnun þess. Sveinn Björnsson var kosinn heið-
ursfélagi Lögmannafélags Islands á 40 ára afmæli féiags-
ins og átti hann þá sæmd skilið öllum öðrum fremur.
En Sveinn Björnsson lét sér ekki nægja að starfa að
málflutningsstörfum eingöngu, þótt þar væru ærin verk-
cfni fyrir hann. Hann lét sig snemma skipta hvers konar
framfarir í landi sínu á sviði fjármála og sjálfsbjargar-
viðleitni, því að hann var í senn bæði hugsjónamaður og
mikill ættjarðarvinur. 1 því efni hafði hann ungur notið
handleiðslu föður síns og snemma tekið þátt í samræðum
u.m þjóðhagsmál á heimili foreldra sinna. Mótaðist hann
einnig snemma til þeirra starfa, er síðar urðu aðallífsstarf
hans, að vekja og leiða íslenzku þjóðina til sameiginlegra
átaka á sviði fjármála og sjálfstæðis.
Eins og kunnugt er, var Sveinn Björnsson einn af að-