Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Side 18
12
Tímarit lögfræöinga
„Hið sameinaða konungsríki krefst þess, að dómurinn
kveði svo á, að þau landhelgismörk, sem Noregi er rétt að
halda uppi í skiptum sínum við Hið sameinaða konungs-
ríki, eigi að ákveðast samkvæmt eftirfarandi meginreglum:
1) Noregur á rétt á landhelgi ákveðinnar breiddar, sem
hvergi má fara fram úr 4 sjómílum.
2) Ytri markalína landhelgi Noregs má þess vegna
aldrei vera meira en 4 sjómílur frá tilteknum stað grunn-
línunnar.
3) Grunnlínan á með þeim frávikum, sem um getur í
liðunum 4, 9 og 10 að neðan, að vera fjörumál á landi, sem
ávallt er upp úr sjó (og er hluti norsks yfirráðasvæðis),
eða rétt lokunarlína norsks innsævis og vatna, sjá lið nr.
7 að neðan.
4) Þar sem land eða sker, sem upp kemur úr sjó við lág-
flæði, er innan 4 mílna frá landi, sem ávallt er ofansjávar,
eða frá réttri lokunarlínu norsks innsævis og vatna, mega
ytri mörk norsku landhelginnar vera 4 sjómílur frá ytri
brún þess lands, eða skers (við lágflæði). Aldrei má annars
taka tillit til lands eða skers, sem einungis kemur upp við
lágflæði.
5) Noregur á rétt á því, að honum séu talin á sögulegum
grundvelli sem innsævi og vötn allir firðir og sund, sem
koma undir hugtakið fjörð að alþjóðalögum (sjá lið 6 hér
að neðan), hvort sem hin rétta lokunarlína vogskornings-
ins er meira eða minna en 10 sjómíiur að lengd.
6) Fjörður telst að alþjóðalögum greinilegur vogskorn-
ingur, sem í hlutfalli við breidd sína í mynni gengur svo
langt inn í landið, að skorningurinn sé meira en einungis
bugða á ströndinni.
7) Þar sem sjávarflötur telst fjörður, gildir sú megin-
regla um lokunarlínu hans, að hana ber að draga milli staða
í fjarðarmynninu, sem frá landfræðilegu sjónai-miði telj-
ast eðlilegir, eða þar sem vogskorningurinn hættir að hafa
fjarðarlögun.
8) Sund í lagaskilningi er hvers konar sund landfræði-
lega séð, sem tengir saman tvö úthafssvæði.