Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Blaðsíða 33
Uuuydúrnuriuv í finlcvciouinúLi BrcLlaudn oy Norcyn
27
undirstöðu tii ákvarðana, sem iöguð sé fyrir hinar marg-
víslegu staðreyndir í máli þessu.
Meðal þessara athugana ber almennt að leggja áherzlu
á hinu nánu tengsl, sem eru á milii landhelginnar og yfir-
i'áða á landi. Það er landið, sem veitir strandríkinu rétt á
sjávarsvæðunum fyrir ströndinni. Af því leiðir, að veita
verður því ríki nauðsynlegt oinbogarúm til þess að gera
því unnt að afmarka landhelgina í samræmi við hagkvæmar
þarfir og aðstæður á staðnum, en um leið má ekki sveigja
grunnhnurnar til muna frá heildarstefnu strandarinnar.
önnur grundvallarathugun, sem er af sérstöku atriði í
niáli þessu, er um hið meira eða minna nána samband, sem
er milli tiltekinna sjávarsvæða og landmyndana, sem greina
þau sundur eða umlykja. Hið raunverulega úrlausnarefni,
er velja skal grunnlínur, er sem sé það, hvort tiltekin
sjávarsvæði, sem ligg.ja landmegin við þessar línur, séu í
svo nánum tengslum við yfirráðasvæðið á landi, að þau
lúti reglunum um innsævi. Á þessari hugmynd eru reistar
reglurnar um firði og beita ætti henni í víðtækum mæli,
að því er strönd varðar, þar sem landslögun er með jafn
sérkennilegum hætti og í Noregi.
Loks má ekki gleyma cinni athugun, sem tekur til fleiri
atriða en þeirra, er varða beint landslögun. Er hér um að
tefla vissa efnahagslega hagsmuni, sem eru eiginlegir til-
teknu landsvæði, enda hafi löng venja sannað ljóslega til-
vist þeirra og mikilvægi.
Noregur heldur því fram, að úrskurðurinn frá 1935 sé
framkvæmd á hefðhelguðu afmörkunarkerfi, er hann telur
vera í fullkonmu samræmi við alþjóðalög. Norska ríkis-
stjórnin hefur í þessu sambandi skírskotað til sögulegrar
heimildar, sem útskýrð var af málflutningsmanni Noregs
á dómþingi 12. október 1951: „Norska ríkisstjórnin skír-
skotar ekki til sögunnar til þess að réttlæta afbrigðileg rétt-
indi, til þess að kref.jast sjávarsvæða, sem synjað myndi
um samkvæmt almennum lögum. Hún vitnar til sögunnar
ásamt öðrum atriðum til þess að réttlæta, með hverjum
hætti hún beitir almennum lögum“. Þessi skoðun á hinni