Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Page 43
Haagdómurinn í fiskveiðamáli Brctlands og Norcgs
37
stæður með úrskurðinum frá 1935, séu ekki í samræmi við
hið hefðbundna norska kerfi. Deila um hreina staðrejmd
reis með aðiljum, að því er varðar eftirtalda grunnlínu-
staði: nr. 21 (Vesterfallet í Gaasan), nr. 27 (Tokkebaaen)
og nr. 39 (Nordboen). Þessi deila er nú óþörf. Með sím-
skeyti, dags. 19. okt. 1951, frá norsku haf- og vatnarann-
sóknastofnuninni til fyrirsvarsmanns norsku ríkisstjórn-
arinnar, en efni þess var kynnt fyrirsvarsmanni ríkis-
stjórnar Hins sameinaða konungsríkis, var það staðfest,
að þessir þrír staðir séu sker, sem sjór flýtur ekki alltaf
yfir. Þar sem þessi staðhæfing hefur ekki frekar verið
véfengd af ríkisstjórn Hins sameinaða konungsríkis, má
líta svo á, að notkun þessara skerja sem grunnlínu-staöa
sé í samræmi við hið hefðbundna norska kerfi.
Loks hefur það verið staðhæft að hendi Hins sameinaða
konungsríkis, að nokkrar að minnsta kosti af grunnlínum
þeim, sem teknar hafa verið upp með úrskurðinum, fari,
hvort sem þær eru í samræmi við norska kerfið eða eklci,
í bág við meginreglur þær, sem dómurinn að framan hefur
talið gilda um afmörkun landhelginnar. Dómurinn mun at-
huga frá sjonarmiði þessara meginreglna, hvort tilteknar
grunnlínur, sem gagnrýndar hafa verið allrækilega, séu
í raun og veru óréttlætanlegar.
Norska ríkisstjórnin viðurkennir, að draga verði grunn-
línur þessar þannig, að tillit sé tekið til heildarstefnu
strandarinnar, og draga verði þær á sanngjarnan hátt.
Ríkisstjórn Hins sameinaða konungsríkis fullyrðir, að til-
teknar línur fylgi ekki eða ekki nægilega heildarstefnu
strandarinnar, eða við ákvörðun þeirra hafi ekki verið
tekið nægilegt tillit til eðlilegs sambands milli tiltekinna
sjávarsvæða og landmyndana, er skilja þau í sundur eða
umlykja þau. Er því haldið fram, að línan væri með þess-
um hætti dregin andstætt þeim meginreglum, sem gilda
um afmörkun yfirráðasvæðis á sjó.
Dómurinn tekur fram um þessa gagnrýni, sem var mjög
almenns eðlis í skriflega málflutningnum, að síðar hefur
verið úr henni dregið.