Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Page 77
ir í dagblöSum um góða fjárhagsstöðu Ferðaskrifstofu ríkisins koma okkur
laganemum því ekki á óvart.
Að endingu vil ég fyrir hönd N.S.J.S. nefndar þakka þeim fjölmörgu lög-
fraeðingum sem hafa stutt við bakið á okkur á einn eða annan hátt og geri
þetta mót að veruleika.
Helgi Sigurðsson
MÁLÞING í SEPTEMBER 1985
[ september n.k. heldur Lögfræðingafélag íslands málþing um skipti dánar-
búa. Verður máiþingið með svipuðu sniði og þau, sem haldin hafa verið á
hausti hverju undanfarin ár. [ ráði er að framsöguerindi verði um eftirtalin
efni:
1. Almennt yfirlit yfir opinber skipti
2. Ftéttarreglur um óskipt bú
3. Reglur um stöðu langlífari maka eða sambúðarmanns við búskipti
4. Executor testamenti
5. Skattlagning dánarbúa
6. Frágangur skjala og lokauppgjör arfs við einkaskipti
7. Erfðafjárskattur
8. Dómsvald skiptaréttar
Fundarboð vegna málþingsins verða væntanlega send félagsmönnum í lok
ágúst.
RÁÐUNEYTISSTJÓRASKIPTI
í DÓMS- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTINU
Við síðustu áramót urðu ráðuneytisstjóraskipti í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu. Lét þá af starfi Baldur Möller, en við tók Þorsteinn Geirsson.
Baldur hafði gegnt ráðuneytisstjórastarfinu frá 1. september 1961. Hann
hóf störf í ráðuneytinu að loknu lögfræðiprófi 1941 og starfaði þar óslitið
síðan að undanskildu einu ári, 1945-1946, er hann gegndi starfi sendiráðs-
ritara í Kaupmannahöfn.
Þorsteinn hefur starfað í Stjórnarráðinu frá 1. desember 1971 sem full-
trúi, deildarstjóri og skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og sem settur
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu frá mars 1984 til síðustu áramóta.
Þorsteinn er sjötti ráðuneytisstjórinn (áður skrifstofustjóri) í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu (áður I. skrifstofu) frá stofnun Stjórnarráðsins 1904 og
sá fjórði frá 1915.
NÝTT LÖGFRÆÐSRIT
Lögfræðiritið NauSungaruppboS er komið út. Er þetta önnur útgáfa á sam-
nefndu riti eftir Stefán M. Stefánsson, prófessor.
Ritið er 190 bls. að stærð. Tekið var tillit til lagabreytinga og dómsúrlausna
á síðustu árum. Enn fremur er ritið talsvert aukið og endurbætt að öðru leyti.
Hin nýja útgáfa ritsins fæst I Bóksölu stúdenta í Stúdentaheimilinu vio
Hringbraut.
71