Tímarit lögfræðinga - 01.11.1987, Blaðsíða 11
2.3. YFIRLANDSRÉTTUR (OBERLANDESGERICHT).
Dómnum er skipt í einkamála- og refismáladeild. (Zivilsenat, Straf-
senat).
I einkamálum er dómurinn áfrýjunardómstóll vegna dóma lands-
réttar og sitja þá þrír embættisdómarar í dómnum.
I stærri sakamálum dæmir dómurinn mál á fyrsta dómstigi og skipa
þá 5 embættisdómarar dóminn.
2.4. ÆÐSTI LANDSRÉTTUR BAYERN
(BAYER. OBERSTE LANDESGERICHT).
I Bayern starfar sérstakur yfirlandsréttur sem fer með hluta þeirra
mála sem annars staðar í Þýskalandi heyra undir yfirlandsrétt.
2.5. ALRIKISDÓMUR (BUNDESGERICHTSHOF).
Alríkisdómstóllinn sem er æðsti dómstóll ríkisins í einka- og saka-
málum er í Karlsruhe. Dómstóllinn er áfrýjunardómstóll vegna dóma
yfirlandsréttar í ákveðnum tilvikum. Rétturinn starfar í 10 einkamála-
deildum og 5 refsideildur. Réttinum er einkum ætlað það hlutverk að
skapa réttareiningu innan sambandsríkisins.
3. SÉRDÖMSTÓLAR
3.1. VINNUMÁLADÓMUR (ARBEITSGERICHT).
Undir réttinn heyra deilumál sem rísa af vinnusamningum, t.d. vegna
launa, uppsagna og gildis og túlkunar kjarasamninga. Niðurstöðu
dómsins má áfrýja til „Landesarbeitsgericht". Þriðja dómstigið innan
þessa málaflokks er svo „Bundesarbeitsgericht".
3.2. STJÓRNSYSLUDÓMUR (VERWALTUNGSGERICHT).
Dómstóll þessi dæmir í málum á sviði opinberrar stjórnsýslu, og er
honum ætlað að setja niður deilur milli borgara annars vegar og ým-
issa opinberra stofnana hins vegar. Ákvörðun dómsins má áfrýja til
stjórnsýsludóms Bayern (Bayer. Verwaltungsgerichtshof). Niðurstöð-
um á 2. dómstigi má áfrýja til 3. dómstigs sem er ríkisdómur innan
þessa málaflokks, „Bundesverwaltungsgericht".
3.3. FJÁRMÁLADÓMUR (FINANZGERICHT).
Dómur þessi fer með þau mál borgara gegn opinberum yfirvöldum
er varða tekjuöflun ríkisins, t.d. skattamál. Niðurstöðu dómsins má
áfrýja til 2. dómstigs, „Bundesfinanzhof".
165