Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 24

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 24
norskum rétti væri beitt. 1 dómi þessum er tekið fram, að eðlilegt sé að sakarefni sé fyrst og fremst dæmt samkvæmt lögum þess lands, sem það hefur sterkust tengsl við, eða á helst heima „ ... bör be- dömmes etter loven i det land, hvortil det har sin sterkeste tilknytn- ing eller hvor det nærmest hörer hjemme.“ Irma-Mignon réglan felur því í sér, að sakarefni sé dæmt eftir lögum þess lands, sem það hefur sterkust tengsl við og má því í raun segja að byggt sé þar á eðli máls sem réttarheimild. Til eru fleiri norskir dómar, þar sem byggt er á þessari reglu,28) auk þess sem svipuð sjónarmið hafa verið lögð til grundvallar í lagaskilarétti annarra ríkja. Regla þessi á þó fyrst og fremst við á sviði fjármunaréttar. VII. LAGASKIL. LAGASAMRÆMI. Spurningar um lagaskil koma upp á hinum ýmsu sviðum réttarins. I sifjaréttinum getur verið álitamál hvernig með skuli fara varðandi hjón eða hjónaefni, sem eru af mismunandi þjóðerni, í sambandi við hjónavígsluskilyrði eða fjárfélag þeirra, stofnun eða slit hjúskapar o.s.frv. I persónuréttinum getur mismunandi lögræðisaldur milli landa valdið vafa um gildi löggernings og á sviði fjármunaréttarins geta ýmis álitamál komið upp í sambandi við það hvaða lögum skuli beitt við úrlausn sakarefnis. I alþjóðlegum einkamálarétti eru mörg álita- efni á sviði sifja-, erfða og persónuréttar leyst á grundvelli svokall- aðra heimalandslaga viðkomandi aðila, og sem byggt er á þrátt fyrir dvalarstaðaskipti. Uppi eru tvær meginreglur um það hvað telja beri heimalandslög aðila í þessu tilliti, þ.e. heimilisfestiregla og ríkisfangs- regla, og mismunandi er eftir löndum hvorri reglunni er fylgt, svo sem fyrr var getið.29) Á sviði fjármunaréttarins er samningafrelsi aðila um lagaval snar þáttur, en ella, og þegar skráðum lágaskilareglum er ekki til að dreifa, þá koma til álita hinir ýmsu tengslaþættir, sem áður hefur verið minnst á. Byggir aðferðafræðin á þeim. Tilgangur með lagaskilareglum er m.a. sá, að ná samræmi í dóms- úrlausnum milli landa, þannig að sama niðurstaða fáist, án tillits til þess hvar mál er rekið. Því markmiði má einnig ná með samræmdri 28) Norskir dómar aðrir: NRT: 1931 bls. 1185, 1937 bls. 888 og 1957 bls. 246. Danskir dómar UfR: 1935, 82 H og 1939, 296 H. 29) Karsten Gaarder, sama rit bls. 64. 18

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.