Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Blaðsíða 52

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Blaðsíða 52
varðandi viðurkenningu erlendra dóma. Þessi sjónarmið eru: 1) Vilji til þess að koma í veg fyrir þann tvíverknað, sem felst í ónauðsynlegri endurtekningu málaferla varðandi deiluefni, sem þegar hefur verið útkljáð fyrir dómstólum. 2) Verndun hagsmuna þess málsaðilja, sem haft hefur betur í málaferlum, gegn undanbrögðum af hálfu þess, sem tapað hefur máli, hvort heldur um er að ræða sóknar- eða varnaraðilja. 3) Að fullnusta dóms í dómstólslandinu eigi ekki að vera allsráðandi við val stefnanda á varnarþingi. 4) Vilji til að skapa festu og öryggi í samskiptum manna, þar sem hagsmunir þeirra hafa oft alþj óðleg tengsl og eru ekki einvörðungu tengdir lögsögu einstaks ríkis. 5) Að dóm- stólslandið sé oft eðlilegri vettvangur fyrir málarekstur en viðurkenn- ingarlandið, hvort heldur það er vegna þæginda, meiri tengsla við sak- arefnið eða af öðrum ástæðum. Menn kann að greina á um réttmæti einstakra atriða í kenningum hinna bandarísku fræðimanna. Hinu verður þó ekki neitað, að gildandi fyrirkomulag í þessum efnum hér á landi hefur í för með sér marg- víslegt óhagræði og óvissu fyrir málsaðilja. Er því eðlilegt, að spurt sé, hvort það skref, sem hér var stigið 1932, hafi ekki fremur verið skref aftur á bak en fram á við. Aðild íslands að fyrrgreindum viðurkenningarsamningi EBE og EFTA yrði tvímælalaust til bóta, þar sem hún myndi rýmka um gild- andi viðurkenningarreglur hér á landi. Eftir sem áður yrðu dómar uppkveðnir í ríkjum utan Norðurlanda og utan EBE og EFTA þó ekki viðurkenndir hér á landi. Það er hins vegar umhugsunarefni, hvort rétt sé að gera viðurkenningu erlendra dóma á Islandi alfarið háða því, að til staðar sé tvíhliða eða fjölþjóðlegur samningur um slíka viðurkenn- ingu. I tengslum við hugsanlega aðild okkar að EBE og EFTA-samn- ingnum er eðlilegt að sú spurning komi fram, hvort rétt sé að stíga enn stærra skref og taka upp það fyrirkomulag, sem hér gilti fram til ársins 1932, þ.e.a.s. viðurkenna erlenda dóma, sem eru í samræmi við góða siði og allsherjarreglu. Verður ekki annað séð af dómi Landsyfir- réttar í dómasafni Lyfrd. V. 164 en að það fyrirkomulag hafi bæði reynst hættulaust og hagkvæmt. SKRÁ YFIR TILVITNUÐ RIT. Alþingistíðindi. Allan Pliilip. Dansk international privat- og procesret. Kanpraannahöfn 1976. Arthur Taylor von Mehren. Recognition of foreign adjudications: A survey and a suggested approach. Harvard Law Review, Volume 81, June 1968. [Ásamt Donald T. Trautman]. 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.