Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Qupperneq 48

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Qupperneq 48
að dómur hins danska dómstóls í því máli sé ekki bindandi úrlausn fyrir íslenska dómstóla, enda liggi ekki annað fyrir en að Hafskip h.f. hafi aldrei sótt þing í sjó- og verslunardómsmálinu. Séu því ekki fyrir hendi forsendur til undantekninga samkvæmt 1.-3. tl. 3. gr. Norður- landasamningsins um frávik frá þeirri meginreglu samningsins, að útivistardómar kveðnir upp í einu samningslandanna hafi ekki áhrif í öðru þeirra. Þá var og til þess vitnað í úrskurði skiparéttarins, að skv. 1. tl. 11. gr. Norðurlandasamningsins yrði efnisúrskurður skiptaréttarins í málinu ekki bindandi fyrir hinn danska dómstól. Þá sagði orðrétt: „Samkvæmt þessum réttarheimildum verður ekki séð, að í máli þessu séu fyrir hendi þær aðstæður, sem reglu 3. mgr. 104. gr. laga nr. 85/1936 er ætlað að hindra. Af þeim ástæðum, sem nú hafa verið greindar, þykja ákvæði laga nr. 85/1936 ekki standa í vegi fyrir að leyst verði úr efni ágreinings málsaðilja með úrskurði þessum.“ Til grundvallar niðurstöðu skiptaréttarins um framangreint álita- efni virðist liggja það sjónarmið, að þar sem hinn danski útivistar- dómur yfir Hafskipi h.f., ef upp yrði kveðinn, nyti ekki viðurkenn- ingar hér á landi, sé ekki rétt, að framangreind málshöfðun fyrir sjó- og verslunardómi Kaupmannahafnar hafi „litis pendens“ áhrif hér á landi. Líklegt má telja, að íslenskir dómstólar leggi það sjónarmið, sem fram kemur í úrskurði þessum, til grundvallar úrlausnum sínum, þegar líkt stendur á og í því máli. f Danmörku, Noregi og Svíþjóð er ekki við settar lagareglur að styðjast um „litis pendens“ verkanir erlendrar málshöfðunar. Þar er þó almennt við það miðað, að óútkljáð mál, sem höfðað hefur verið erlendis á undan máli, sem höfðað er um sama sakarefni milli sörnu aðilja í löndum þessum, hafi „litis pendens“ verkanir þar, ef gera má ráð fyrir, að dómur sá, sem upp verður kveðinn erlendis, hafi réttar- verkanir í löndum þessum.56) Nokkur skoðanamunur virðist vera hjá dönskum fræðimönnum um það, hvort höfðun skilnaðarmáls erlendis sé því til fyrirstöðu, að skilnaðarmál milli sömu aðilja verði höfðað fyrir dönskum dómstólum. Torben Svenné Schmidt57) bendir á, að í skilnaðarmálum hafi því jafnan verið hafnað af dönskum dómstólum að viðurkenna „litis pend- ens“ verkanir erlendrar málshöfðunar, þegar á slíkt hefur reynt þar 56) Torben Svenné Schmidt, International skilsmisse- og separationsret, bls. 355; Komm- enteret Retsplejelov, I. bindi. Kaupmannahöfn 1982, bls. 219; Allan Philip, áður tilvitnað rit á bls. 131. 57) Torben Svenné Schmidt, International skilsmisse- og separationsret, bls. 357. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.