Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.12.1994, Qupperneq 9

Ægir - 01.12.1994, Qupperneq 9
flottrollsins með því að auka stórum fleygum í og endurbœtti það vendega. „Þetta var mokveiði," segir Auðunn. „Ég togaði eitt sinn í gegnum tvær góðar torfur og hífði svo 26 poka, ca. 60 tonn af aðgerð- um fiski. Það var svo miklu auðveldara að taka svona stór höl á síðutogurum en á skut- togurum. Þarna henti þab að menn toguöu of lengi og trollið fylltist og slitnaði aftan úr í heilu lagi. Ef við hefðum fiskaö stanslaust hefðum við getað tekiö 3-400 tonn á sólarhring. Vib lágum í 14-16 tíma meðan gert var að ef ekki hafðist undan." Flottroll nútímans eru á við marga fótbolta- velli á stœrð og mörgum sinnum stœrri en fyrstu gerðimar. Þau eru mikið notuð á karfa- veiðum á lithafskarfa. „Þetta eru ryksugur," segir Auðunn „og verði ekkert að gert á þetta eftir að ganga af karfastofninum dauöum." Selvogsbankinn var og er eitt helsta hrygn- ingarsvœði þorsksins og á þessum umrœddu mokveiðum á þorski í flottroll á þessum slóð- um fór það ekki framhjá sjómönnum. „Við vorum einhverju sinni ab taka inn stórt hol í góbu vebri og sjórinn var blátær og átulaus. Eftir nokkra stund varð mér litið út fyrir síðuna og svilin voru slík í sjónum ab það var eins og dallurinn lægi í mjólkur- trogi." Pontið besta klakstöðin Það fer ekki hjá því að spurt sé hver áhrif slíkar veiðar hafi á viðgang þorskstofnsins. Hvort rétt sé að veiða þorskinn á hrygningar- tíma? „Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur þekkti vel til togveiða, hann fór marga túra með Guðmundi á Skalla á kreppuárunum. Hann sagbi að pontið á togurunum væri ein besta klakstöð þorsksins og ég er honum sammála. 1972 var svæði djúpt á Selvogsbankanum opnað 25. apríl. Þá var ég með Hólmatind og var þarna við veiðar ásamt stærstum hluta báta- og togaraflotans í góðri veiði og fiskur- inn er um það bil að byrja að hrygna. Hafrannsóknastofnun sendir rannsókna- skipið Bjarna Sæmundsson á svæðið í dauð- ans ofboði og telur að hér hafi orðið ægilegt slys. Þaö kom hins vegar í ljós við seiðataln- ingar að út úr þessu „slysi" kom eitt besta klak á þessum ámm. Þarna sönnuðust kenn- ingar Bjarna heitins Sæmundssonar. Hver er maðurinn? Aubunn Auöunsson fæddist á Minni-Vatnsleysu 25. apríl 1925. For- eldrar hans voru Auðunn Sæmundsson útvegsbóndi þar og kona hans Wilhelmína Þorsteinsdóttir. Auöunn var sonur Sæmundar Jónssonar og Guðrúnar Lísbetar Ólafsdóttur á Minni-Vatnsleysu. Aubunn og Wilhelmína eignuðust 14 börn sem hétu (eftir aldursröð: Ólafur, Elín, Kristín, Sæmundur, Þorsteinn, Gunnar, Halldór, Gísli, Auð- unn, Petra, Pétur, Guðjón, Gubrún og Steinunn. Fimm sonanna hafa fengist við skipstjórn meira og minna um ævina og verið aflasælir. Aubunn Auðunsson fór ungur til sjós, fyrst sem fullgildur háseti 1937, 12 ára gamall á Gunnari Hámundarsyni. Fyrsta skipið sem hann stýrði var Kaldbakur frá Akureyri árið 1950. Hann átti síðan ríflega 30 ára feril sem togaraskipstjóri. Fyrst á síðutogurum, Fylki, Sigurði og Narfa. Síðan á skuttogurum Hólmatindi, Framnesi, Hvalbak, Kambaröst og fleirum. Auðunn kvæntist Sigríði Stellu Eyjólfsdóttur. Börn þeirra eru Sæ- mundur, Björn Eyjólfur, Steinunn, Ásdís og Stella Auður. Menn halda að það megi aldrei trufla náttúruna við hennar störf. En þá brosi ég breitt og hugsa til laxveiðimanna sem hafa einmitt gert það með góðum árangri." Hvemig samdi þér við Hafrannsóknastofnun á ferli þínum sem togara- skipstjóri? „Mér samdi bæði vel og illa við þá. Mér finnst þeir oft fullyrða of mik- ið. 1958 var ég á Agli Skallagrímssyni við Austur-Grænland á þorskveiðum á Jónsmiðum. Þarna rákumst við á bullandi hrygningarfisk niðri á 250 faðma dýpi. Árið áður hafði ég fengið merktan þorsk á Látragrunni. Þá fullyrti Hafró að þorskurinn hrygndi hvergi nema milli Ingólfshöfða og Látrabjargs. Þessi fiskur sem ég fann við Grænland breytti því miklu því það sýndi ÆGIR DESEMBER 1994 9

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.