Ægir - 01.12.1994, Side 20
Páll Ásgeir Ásgeirsson.
Daginn sem Ægir heimsækir Þor-
bjarnarbræður í Grindavík er allt á
ferb og flugi. Kaupin á gömlu Guö-
björginni eru heyrinkunn, Gnúpur
liggur viö bryggju nýkominn úr
stuttri veiöiferð á heimamið og verið
er að taka veiðarfæri og ýmis tæki í
land áður en honum verður siglt til
Noregs en fyrst þarf að drífa hann í
slipp í létta yfirhalningu.
Kvótaeign Þorbjamar er samtals
3.473 þorskígildistonn. Kvótinn skiptist
þannig milli skipa að Gnúpur er með
2.058 þ.íg.tonn, þar af 615 tonn af
þorski, en Hrafn Sveinbjamarson hefur
1.425 þ.íg.tonn, þar af 389 tonn af
þorski. Hrafn hefur auk þess stundað
karfaveiðar á Reykjaneshrygg og sótt í
Smuguna í Barentshafi. Gnúpur hefur
tvisvar sinnum sótt fullfermi afsöltuðum
þorski í Smuguna og siíkt hlýtur að vera
drjúg búbót og alls hafa skip Þorbjarnar
sótt í Smuguna sem svarar nœr öllum út-
hlutuðum þorskkvóta fyrirtœkisins.
„Við höfum notið góðs af veiðum í
Smugunni en við byggjum ekki rekst-
ur okkar á að framhald verði á þeim.
Við bindum meiri vonir við karfaveið-
arnar. Auðvitað vonum við svo að ís-
lendingar fái kvóta úr Barentshafi,"
segir Gunnar og bræður hans taka
undir.
Hve mikill kvóti vœri sanngjarn og
hverjir eiga að fá hann?
„Sagði Gro Harlem ekki á fundi að
íslendingar væru búnir að veiða 50
þúsund tonn? Það er hæfilegur kvóti.
Við höfum fram til þessa skipt kvóta
niður á útgerðir eftir veiðireynslu og
það er engin ástæða til þess að breyta
því. Þeir sem hafa veitt í Barentshafi fá
kvótann ef til kemur."
Nú hafa smábátaeigendur lýst þeirri
skoðun að slíkum kvóta skuli jafha nið-
ur á alla. Finnstykkur það rétt?
„Ef við gætum aukið okkar veiöi
jafnmikið og þeir hafa gert á undan-
förnum árum þá værum við ánægðir.
Þeir hafa fengið sérstaka meðhöndlun
í kvótakerfinu."
Mikil skerðing veiðiheimilda
Hvernig hefur Þorbjörn farið út úr
kvótakerfinu. Hefur skerðing veiðiheim-
ilda orðið mikil?
„Við höfum orðið fyrir hrikalegri
skerðingu," segir Eiríkur framkvæmda-
stjóri. „Þegar best lét 1988 og 89 fram-
leiddum við 1800 tonn af saltfiski.
Árið 1989 veiddi Gnúpurinn 2000
tonn af þorski auk alls annars afla. í
dag er Gnúpurinn með kvóta af þrem-
ur vertíðarbátum auk síns eigin kvóta.
Við höfum verið að bjarga okkur und-
an skerðingum með því að selja skip
og laga útgerðina. í dag eru þorskveiði-
heimildir okkar fjórðungur þess sem
þær voru áður og karfaveiðiheimildir
hafa einnig dregist mikið saman."
Hefur ykkur tekist að aðlaga fyrir-
tœkið þessum breyttu forsendum?
„Okkur hefur tekist það bærilega en
þaö er ekki auðvelt að búa við stans-
lausan niðurskurð á aflaheimildum og
erfiðast er þegar störfum fækkar í kjöl-
farið. Það versta sem maður gerir er að
þurfa aö fækka fólki eins og við höfum
20 ÆGIR DESEMBER 1994