Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1994, Side 39

Ægir - 01.12.1994, Side 39
Skrápflúrurannsóknir árin 1993 og 1994 Gunnar Jónsson og Gunnar Pétursson. Skrápflúra, Hippoglossoides plat- essoides limandoides (1. mynd) er ein algengasta flatfisktegund á íslandsmib- um. Hún finnst allt í kringum land á um 10-500 metra dýpi. Auk þess að finnast hér vib land þá er hún víba í NA-Atlantshafi eða allt frá N-íshafi, Mynd 1. Skrápflúra. Barentshafi og Hvítahafi og mebfram ströndum Noregs inn í Eystrasalt, í Norbursjó og subur í Ermarsund. Þá finnst hún allt í kringum Bretlandseyj- ar og vib Færeyjar. í NV-Atlantshafi frá Grænlandi subur til Þorskhöfba í N- Ameríku er undirtegundin H. plates- soides platessoides sem verbur stærri - nær allt ab 80 cm lengd en skrápflúran í NA-Atlantshafi verður varla stærri en rúmlega 50 cm. Lengsta skrápflúra sem veibst hefur á íslandsmibum var 52 cm á lengd (veiddist í mars 1993 undan SA-landi) og í Barentshafi hefur veibst 52 cm löng skrápflúra. Stóraukinn afli Áhugi á skrápflúruveiðum hefur ekki verib mikill hér enda hefur lítill eba enginn markaður verib fyrir hana. En nú er áhugi ab vakna á þessari fyrr- um forsmábu fisktegund og er farið ab veiba hana, landa og nýta sem mat- vöru. Á skömmum tíma hefur landað- ur afli farib úr nánast engu í mest 1709 tonn árib 1991 en var 1336 tonn árib 1993 (2. mynd). Þrátt fyrir tíbni sína hefur skrápflúr- an ekki verib mikib rannsökub tii þessa alla vega ekki hér á íslandsmib- um. Þó eru til mikil gögn frá fyrri árum, einkum lengdarmælingar, en á árunum 1953-1967 var mikið mælt af skrápflúru á grunnslób hér vib land og frá því ab togararall hófst árib 1985 hefur mikib bæst við af lengdarmæl- ingum. Á árunum 1985-1993 munu hafa verið mældar rúmlega 400 þús- und skrápflúrur hér við land. Þar af voru mældar rúmlega 50 þúsund árib 1993. Nú er einnig farib ab safna gögnum um fæðu skrápflúru og nokkrum kvörnum hefur verið safnab til aldurs- ákvörbunar. Úr togararalli árib 1993 voru aldursákvarðabar kvarnir úr 147 skrápflúrum sem safnab var undan Austfjörbum og á Þórsbanka og auk þess voru aldursgreindar kvarnir úr 96 skrápflúrum sem veiddust í dragnót í Háfadjúpi og 89 sem veiddust í dragnót í Jökuldjúpi. Sýnin voru tekin í mars og byrjun apríl Qökuldjúp). Veiðistaðir eru sýndir á 3. mynd. Jafnhliba kvarnasöfnuninni í tog- araralli 1993 voru vegnar 104 skráp- flúrur óslægðar 10-47 cm langar á Austfjarbamiðum. Lengdar/þyngdar samband er sýnt á 4. mynd. Hrygnur í meirihluta í togararalli 1994 var haldib áfram vib skrápflúrurannsóknir þar sem frá var horfib árib ábur. Safnað var kvörn- um til áframhaldandi aldursrannsókna og þyngdarsýni voru tekin á öllum togurunum fimm sem þátt tóku í tog- araralli. Alls voru aldursákvarðaðar 624 skrápflúrur, þar af 176 hængar (28,2%) sem safnab var á 14 stöbvum (5. mynd). Athyglisvert er hve hrygnur voru í miklum meirihluta alls stabar nema undan vestanverbu Norbur- landi, þar var nokkurnvegin jafnvægi, þ.e. 51% hængar og 49% hrygnur. Gunnar Jónsson fiskifræöingur á Hafrannsóknastofnun. Gunnar Pétursson stærðfræðingur á Hafrannsóknastofnun. Vigtabar voru 350 skrápflúrur óslægbar á 5 stöbvum allt í kring um landið. Lengdar/þyngdarsamband er sýnt á 6. mynd. Niburstöbur aldursákvörbunar 1993 og 1994 eru sýndar á 7. og 8. mynd. Á 7. mynd er sýndur aldur og mebal- lengd skrápflúru 1993 og á 8. mynd sést aldur og meballengd skrápflúru 1994 og er þar allt í samræmi vib aldur ÆGIR DESEMBER 1994 39

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.