Ægir - 01.06.1995, Page 4
Jón Sigurösson skipstjóri, eigandi og
útgeröarmaóur Sindra RE 46, á engan
sinn líka. Jón hefur frá árinu 1981
fullverkaö allan sinn afla sjálfur, salt-
aö þorskinn og grásleppuhrognin,
flakaö og fryst ýsuna og selur völdum
viöskiptavinum og fá færri en vilja.
Jón býr vel aö sínu og er nú aö Ijúka
grásleppuvertíð sem liann segir vera
þá bestu frá upphafi. Sindri á heldur
engan sinn líka því hann er í gamni
kallaður minnsta fullvinnsluskipið í
flotanum, plastbátur skráöur átta
brúttólestir, og ber þá nafnbót með
rentu því allur fiskur er flakaður um
borð og komiö ineö flökin tilbúin til
vinnslu í land. Þar fer aflinn beint í
frost eöa salt eftir atvikum og Jón og
kona hans, sem sjá nær eingöngu um
vinnsluna ein, nostra við hvern ugga.
Jón er eini útgeröarmaöurinn í þess-
um stærðarflokki sem hefur leyfi til
þess aö vinna sinn afla meö þessum
hætti en þaö gekk ekki þrautalaust.