Ægir - 01.06.1995, Síða 8
legri. Báturinn er svo
helmingi meira skip
eftir breytinguna."
Eldskírn í suðaust-
an níu vindstigum
Sindri komst að því
fullkLyptii skömmu
eftir að hann var yfir-
byggður, nánar tiltek-
ið í fyrsta róðrinum
þegar Jón og Kristján
Ström voru á veiðum
norður afAkranesi.
„Eg hringdi heim
um daginn, eins og
ég hef fyrir reglu að
gera tvisvar til þrisv-
ar í hverjum róðri, og
Guðrún sagði mér að
það væri komið vit-
laust veður í Reykja-
vík. Þá var rjómalogn
þar sem við vorum
að draga. Við rétt
náðum inn trossunni, þá var komið
aftakaveður, suðaustan 8-9 vindstig og
haugasjór. Þá leist mér ekki vel á blik-
una. Við byrjuðum að keyra áleiðis í
land en veðrið var dimmt og ég stefndi
vel út fyrir Akranesið en kompásinn var
skakkur vegna breytinganna á bátnum
og viö lentum upp á Svið þar sem er
grynnra og við fengurn hvert brotiö eft-
ir annað yfir bátinn. Þaö sem gerist er
að hann einfaldlega leggst á hliðina og
það skolar yfir hann og hann er eldfljót-
ur að rétta sig af aftur. Þá sá ég best
hvað báturinn ver sig vel. En það er rétt
að útlitið er sérstakt og þeir koma
stundum túristarnir og spyrja hvenær
næsta ferö sé því þeir halda að þetta sé
lítill ferjubátur."
/ þessu sama veðri fórust tveir smá-
bátar frá Akranesi sem voru að veiðum á
sviþuðum slóðum og Sindri.
Kvótakerfið, kötturinn og sinnepið
Eins og nœr óumflýjanlegt er þegar
rœtt er við sjómenn berst talið enn og aft-
ur að kvótakerfinu. Er Jón orðinn sáttur
við þetta kerfi sem hann virðist hafa lag-
að sig þokkalega að. Er þetta eftir allt
sarnan ágœtt kerfi?
„Ég vil svara því með því að rifja upp
söguna um það þegar Churchill,
Roosevelt og Stalín ætluðu að gefa kett-
inum sinnepið. Fyrst setti Churchill
smáslettu á undirskál og bauð kisa en
hann sneri upp á sig og vildi ekki sjá
það. Næst prófaði Roosevelt að setja
stærri slettu á undirskál og gefa kettin-
um með teskeið en ekki vildi kötturinn
smakka það heldur.
Stalín tók hins vegar í hnakkadramb-
ið á kettinum og tróð hausnum á hon-
urn á bólakaf í sinnepið og makaði hann
allan út í því. Kisi ræfillinn fór að sleikja
sig í framan og verka af sér sinnepiö og
þá sagði Stalín: „Sjáið köttinn, honum
þykir gott sinnep. Hann vill þetta."
Þannig er það með mig og kvótakerfiö.
Ég kemst af vegna þess að ég var með
þessa sérstöðu að vinna minn fisk sjálf-
ur og hef keypt mér veiðiheimildir. En
kerfið er alveg hræðilegt í mínum huga
og ömurlegast gagnvart sjómannastétt-
inni. Það eru ekki smábátar sem hafa
valdið hruni þorskstofnsins. Það hafa
smáfiskadráparar með togveiðarfærum
gert. Þeir eru svo verðlaunaðir og fá út-
hlutað kvóta fyrir að eyða þorskinum.
Síðan leigja þeir kvóta til sjómanna á
Suðvesturlandi sem
alltaf hafa komið
með stóran fisk að
landi og þeir mega
borga smáfiskadráp-
urunum fyrir að fá
að veiöa. Þetta finnst
mér afar skrýtið.
Það er mín skoðun
að það hafi orðið
þáttaskil í þessum
efnum eftir að farið
var að veiða smáfisk
allan ársins hring
meö skuttogurum
fyrir Norðurlandi og
Norðausturlandi.
Hér áður fyrr var
nægur stórfiskur á
vertíðunum hér
Sunnanlands og þó
voru netin svo þétt
að það mátti ganga á
baujunum meðfram
ströndinni. Togar-
arnir eyddu þorskinum."
Mitt lán að asnast til að
byrja á þessu
Sindri RE hefur ekki, frekar en aðrir
afamarksbátar, farið vel út úr kvóta-
skerðingu undanfarinna ára.
„Ég byrjaði að verka minn fisk sjálf-
ur 1981. Þá veiddi ég þorsk í net og
seldi þeim í Seifi. Mér fannst ég ekki fá
nógu gott verð fyrir dauöblóðgaða fisk-
inn og fór að salta hann sjálfur og fór
svo að verka allt sjálfur. Það hefur verið
flakaður fiskur um borð í Sindra síðan
1981. Það var mitt lán að ég skyldi
asnast til að byrja á þessu saltfiskdútli."
Nú fer allur saltfiskur sem Jón verkar
beint til Spánar gegnum SÍF og hann seg-
ist til skamms tíma hafa verið með 80%
affiskinum í A-flokk þó það hlutfall hafi
eitthvað lœkkað með strangara mati uþþ
á síðkastið.
Jón segist nýlega hafa fengið bréffrá
Byggðastofhun þar sem honum var boðið
að sœkja um sérstakan styrk sem veita á
útgerðarmönnum lítilla báta sem hafa
orðið fyrir mikilli kvótaskerðingu.
„Mér er nú næst skapi aö setja undir
mig hausinn og skipta mér ekkert af
8 ÆGIR