Ægir - 01.06.1995, Side 13
SJAVARSIÐAN
MAÐUR MÁNAÐARINS
Síldin er enn ekki söltunarhæf og
því sýnt að hún fari öll í bræðslu.
HW Mokveiði er af úthafskarfa á
BHI Reykjaneshrygg og berast
fréttir af 30-40 tonna hölum og
300 tonna veiði á tveimur sólar-
hringum hjá Breka VE.
M Hornfirðingar mótmæla því
■i harðlega að upphafi
humarvertíðar er frestað um eina
viku. Þeir telja að með þessu sé
ráðuneytið að þjóna sérhagsmun-
um Sunnlendinga en engar for-
sendur séu fyrir frestun eystra.
nS Velheppnaðri vetrarvertíð
■■fl lýkur og þótt aflakóngstitlar
hafi lagst af með kvótakerfinu
reikna Fiskifréttir út að Oddur Sæ-
mundsson skipstjóri á Stafnesinu
KE eigi skilið titilinn aflakóngur.
Stafnesið fékk 1.180 tonn í netin
á vertíöinni fyrir alls 80 milljónir.
PM Humarvertíð fer illa af stað.
■■fl Niðurstöður úr rannsóknar-
leiðangri sýna léleg aflabrögð og
slakt ástand miðanna. Fiskifræð-
ingar kenna of miklu álagi um og
segja stofninn á niðurleið.
PPS Hafrannsóknastofnun legg-
IbhA ur fram árlega ráðgjöf sína
um veiði á næsta kvótaári. Þau
nýmæli er tekin upp að miða við
aflareglu í þorskveiðum og skal
stefnt að því að veiða aldrei meira
en 25% af veiðistofni en þó ekki
minna en 155 þúsund tonn en
það er einmitt hámark næsta árs
samkvæmt téðri reglu.
PJJ Hafró greinir frá gífurlegum
■■I sjávarkulda fyrir öllu Norð-
urlandi og hefur sjór ekki mælst
svo kaldur í um 50 ár. Þetta getur
haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir fiskistofna á svæðinu.
M Stofnar karfa og grálúðu
KAifl standa höllum fæti og
Hafró leggur til að dregið verði
verulega úr sókn í stofnana. Mælt
er með 20 þús. tonna afla af grá-
lúðu en áætlaður afli þessa árs er
35 þúsund tonn.
Maður mánaðarins að þessu sinni er Steingrímur JÓHANN SigfÚSSON alþingis-
maður sem er nýr formaöur sjávarútvegsnefndar Alþingis. Sjávarútvegsnefnd er ein
af fagnefndum þingsins og til hennar umfjöllunar koma öll þingmál sem varða
sjávarútveg. „Það skiptir miklu aö nefndin vinni sín störf faglega og efnislega og
innan hennar finnist flest sjónarmið sem uppi eru um þennan málaflokk," sagði
Steingrímur í samtali við Ægi.
Formennska Steingríms í sjávarútvegsnefnd er
hluti af nýjum vinnubrögðum Alþingis þar sem
stjórnarandstöðuþingmenn stýra nokkrum lykil-
nefndum. „Fyrir vikið starfar formaðurinn meira á
faglegum grundvelli en pólitískum. Þróunin hefur
verið sú að nefndir eru að gerast sjálfstæðari í störf-
um og ég mun reyna að fylgja henni eftir. Þannig
styrkjum við þingræðið."
Steingrímur sagði í samtali við Ægi að starfs-
reynsla hans í sjávarútvegi væri farin að eldast nokk-
uð en fyrsta launavinna hans var í fiskvinnslu á Þórshöfn og á námsárum sínum
var hann hluta úr ári háseti á togaranum Fonti frá Þórshöfn. Steingrímur ók einnig
vörubíl á námsárununt en stundaði jafnframt jaröfræðistörf og var íþróttafrétta-
maöur hjá Sjónvarpinu. Hann hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum á vegum
Alþingis og var formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1987 til 1988 og er vara-
formaður flokksins. Hann hefur setið á þingi fyrir Alþýðubandalagið frá 1983 og
var landbúnaðar- og samgönguráðherra árin 1988 til 1991.
Steingrímur Jóhann er fæddur 4. ágúst 1955 á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, son-
ur hjónanna Sigfúsar Jóhannssonar bónda þar og Sigríðar Jóhannesdóttur konu
hans. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1976 og lauk B.Sc.-prófi
í jarðfræði frá Háskóla íslands 1981 og prófi í kennslu- og uppeldisfræði frá HÍ
1982. Steingrímur er kvæntur Bergnýju Marvinsdóttur og eiga þau þrjá syni, Sigfús,
Brynjólf og Bjart.
ORÐ í HITA LEIKSINS
„Jafnvel slíkt fjölmiðlaveldi sem Morgunblaðið er nær ekki aö kasta ryki í augu
kjósenda og grafa undan því skynsamlega starfi sem unnið hefur verið hér á landi
á sviði fiskveiðistjórnunar með mótun aflamarkskerfis." Kristján Ragnarsson
skammar Morgunblaðið í fréttabréfi LÍÚ 2. tbl. 1995.
//í*að var eins og herskipaæfing hjá Nató hér úti á Breiðafirðinum unt helgina."
Grásleppukarlar kvarta undan ágangi Landhelgisgæslunnar viö eftirlitsstörf.
„Við íslendingar eigum langt í land með að byggja upp menntakerfið í kringum
helsta atvinnuveg okkar þannig að sómi sé að og það fái staðist ströngustu kröf-
ur." Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ lýsir skoðun sinni á mennta-
kerfi sjávarútvegsins í Fiskifréttum.
„Þetta hefur þróast upp í að verða reglugerðarhólf og þegar það gerist er ekki fyr-
ir sjálfan Guð almáttugan að fá það opnað." JÓEIANNES Héðinsson skipstjóri á
Brimnesinu frá Patreksfirði lýsir steinbítsveiðum fyrir Fiskifréttum.
„I vetur er þetta búið að vera hreinn mokstur alls staðar sunnan og vestan við
landið, hrein þorskmengun." Grétar Mar Jónsson skipstjóri og aflakóngur Á Suö-
urnesjum lýsir þorskgengd í viðtali við Víkurfréttir.
ÆGIR 13