Ægir - 01.06.1995, Blaðsíða 14
á 90 ára afmæli
Mef) þessu tölubla&i Ægis, sem er hib 6. af 88. árgangi, má
minnast 90 ára afmælis ritsins. Fyrsta tölublað Ægis leit
dagsins ljós í júlímánuði árið 1905. l’að var Matthías Þórð-
arson frá Móum á Kjalarnesi sem stofnaði það. Matthías
var mikill framfaramaður sem starfaði við útgerb og varð
síöar forseti Fiskifélagsins.
Matthías stýröi blabinu sjálfur og gaf það út mánaðarlega
fyrstu árin. í blaðinu var einkum fjallað um mál sem snertu
fiskveiðar og farmennsku og til bóta máttu horfa fyrir íslend-
inga. Útgáfan gekk ágætlega framan af en svo fór ab blaðið
Fyrstu ritstjórar Ægis, Matthías Þórðarson og Sveinbjörn
Egilson. Myndin er tekin í júlí 1932 í tilefni af útgáfu 25.
árgangs Ægis.
náði ekki að festa sig í sessi og hætti Matthías útgáfu þess í
júní 1909 og lá útgáfan niðri um ríflega þriggja ára skeið. Í
ársbyrjun 1912 hóf blaðib aftur göngu sína og hafði nú orðið
sú breyting á að Fiskifélag íslands hafði keypt útgáfuréttinn,
nafnið og blaðaleifar af Matthíasi og var kaupverðið 560
krónur. Þarna er komin skýringin á því hvernig halda má upp
á níræöisafmæli þó árgangarnir séu 88.
Um áramótin 1914 lét Matthías af starfi ritstjóra og Svein-
björn Egilson tók við og þótti blaðið taka nokkrum stakka-
skiptum undir hans stjórn og verða skemmtilegra en áður.
Sveinbjörn gegndi starfi ritstjóra lengur en nokkur annar hef-
ur gert, allt til ársins 1937 eba í 23 ár. Fram til 1927 var Svein-
björn jafnframt eini starfsmaður skrifstofu Fiskifélagsins og
sinnti öllum þáttum útgáfu Ægis auk ritstjórnar.
Árib 1937 tók Lúðvík Kristjánsson fræðimaður við ritstjórn
blaðsins og gegndi því embætti allt til 1954 að Davíð Ólafs-
son fiskimálastjóri tók vib því.
Þegar Davíð Ólafsson settist í stól fiskimálastjóra tók hann
vib ritstjórn Ægis og var sá siöur hafður á lengi eftir að fiski-
málastjóri var jafnan ritstjóri Ægis jafnframt. Davíð jók út-
gáfutíðni blaðsins og kom það út tvisvar í mánuði um hríö.
„Þér fiskimenn og sjómenn! Yður er þetta rit ætlaö,
það á vera ykkur leiöarvísir og málsvari, það á að leið-
beina og styðja að öllu því sem getur orðið ykkar atvinnu-
veg til þrifa og framfara, að öllu því sem getur stutt að
ykkar sameiginlegu velgengni, það á að vera talsmaður
yðar þegar þér eruð önnum kafnir á hafi úti og hafið ekki
tíma til umsvifa; það á upplýsa yður sem búið á útkjálk-
um og annesjum, þar sem auðurinn er annars vegar, en
því miður oft vanþekking og fátækt hins vegar. Öll þau
málefni sem að einhverju leyti geta stutt ab framfömm í
fiskiveiöum, veiðiaðferöum, hagnýtingu, verkun o.fl.
verða rækilega rædd og útlistuð, hafandi fyrir augum
bæði útlent og innlent efni sem gefur leiðbeiningar og
upplýsingar í því efni..."
Matthias Þóröarson ávarpar lesendur í fyrsta tölublaði
Ægis í júlí 1905.
Engir aöstoðarmenn eru skráðir í blaðhaus en þegar Davíð
lætur af störfum 1967 þakkar hann sérstaklega Gísla Ólafs-
syni starfsmanni Fiskifélags íslands fyrir vel unnin störf við
útgáfu Ægis. Gísli og Davíð eru bræður.
Már Elíasson varð fiskimálastjóri á miðju ári 1967 og verð-
ur þá jafnframt ritstjóri Ægis. Hann er einn skráður ritstjóri
allt til ársins 1973 þegar Jónas Blöndal gerist aðstoðarritstjóri
og hans hægri hönd viö útgáfuna. Árið 1978 bætist þeim Má
og Jónasi enn liðsauki þegar Birgir Hermannsson er ráðinn
ritstjórnarfulltrúi. Birgir er bróðir Halldórs, Sverris og Gísla
Jóns sem allir hafa komið að útvegsmálum, hver með sínum
hætti. Þessir þrír stýra blaðinu allt til þess að Þorsteinn Gísla-
son verður fiskimálastjóri í upphafi árs 1983 og verður rit-
stjóri Ægis en þeir Jónas og Birgir gegna sínum störfum viö
blaðið áfram.
14 ÆGIR