Ægir - 01.06.1995, Qupperneq 19
sókn en stjúpfaðir hans, Magnús Steinþórsson, fékkst við sjó-
róðra og var þaulkunnugur miðum í Breiðafirði. Lúðvík hóf
sinn eigin sjómennskuferil 1926 sem háseti á skútu frá Pat-
reksfiröi. Áriö 1928 var hann á enskum togara, King's Grey,
sem geröur var út frá Hafnarfirði, eitt sumar á mótorbát frá
Hrísey og síöar fjögur sumur á síld á Kveldúlfstogurunum.
í eftirmála fimmta bindis íslenskra sjávarhátta lýsir Lúövík
nokkuð kynnum sínum af sjómönnum og sjómennsku og
hvernig það atvikaðist að hann réðist í ritun þess mikla verks.
Þar segir:
„Tólf ára gamall var ég vetrartíma hjá Bjarna Árnasyni föð-
urbróður mínum í Einarsbúð á Brimilsvöllum. Hann hafði
bátaútveg, var afiasæll formaður og margfróður um allt er
vissi að sjómennsku á opnum skipum. Brimilsvellir voru fyrr-
um stór verstöð. Þá er ég kynntist mannlífi á Völlum voru
sjávarhættir þar með sama brag og verið hafði um aldir."
Það var síðan um borð í togaranum King’s Grey að Alex-
ander Jóhannesson, sem þar var fiskiskipstjóri, leiddi í tal vib
Lúðvík nauðsyn þess að færa til bókar fróðleik um sjó-
mennsku árabátaaldarinnar. Lúðvík segir að sú ábending hafi
blundað með honum alllengi síðar en Alexander þekkti tím-
ana tvenna á þessu sviöi.
Stuðningur frumkvöðlanna
Síðan þegar Lúðvík hóf störf sem ritstjóri Ægis kynntist
hann fiskifræðingunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Frið-
rikssyni. Þessir tveir merku vísindamenn, sem unnu mikið
brautryðjendastarf í þágu þjóðarinnar með störfum sínum
hjá Fiskifélagi íslands, hvöttu Lúbvík til dáða á þessu sviði.
Þegar hann lét af starfi ritstjóra Ægis 1954 hóf hann að vinna
af fullum krafti að efnisöflun og aðdráttum vegna íslenskra
sjávarhátta.
„Þeir eggjuðu mig báðir áfram. Sérstaklega ræddi ég mikið
við Bjarna og notaði mikib heimildir frá honum."
Lúðvík skrifaði fyrstu greinina um efnið 1932 en telur að
um 1955 hafi hann verið búinn að setja niður þann ramma
sem síðar var fyllt upp í. Hann ferðaðist víða um landið
vegna skrifanna og skráðir heimildarmenn em um 400, marg-
ir fæddir á öldinni sem leið.
„Það væri þýðingarlaust að ætla að vinna þetta verk nú.
Það væri of seint. Ég hefði ef til vill þurft að byrja fyrr."
Ég les Ægi
Lúðvík hefur því setið við skriftir alla sína ævi og liggur
beint við að spyrja hvort hann hafi lagt pennann á hilluna.
„Ég er aö mestu hættur að fást við stærri verk. Ég hef skrif-
að ritgerðir hér og þar síðan ég lauk við íslenska sjávarhætti
en ekkert sem orð er á gerandi."
Fylgist þú enn með því sem er að gerast í sjávarútvegin-
um?
„Ég les Ægi og það sem birtist í Verinu í Morgunblaðinu
og veit þannig í stórum dráttum hvað er að gerast." □
Fiskveiðasjóður íslands, sem þjónaó hefur sjóvarútvegi íslendinga í nær 90 ór færir Námskeið
Ægi, blaói Fiuskifélags íslands, Slysavarnaskóli sjómanna verður með
bestu órnaóaróskir í tilefni almenn og smábátanámskeið á eftirtöldum stöðum í sumar:
90 óra afmælisins. - Neskaupstaður 27.-30. júní - Húsavík 4.-7. júlí
✓ - Akureyri 29. ág. - 1 .sept. Árnaðaróskir vegna 90 ára afmælis Ægis. Þökkum góð samskipti.
WTi FISKVEIÐASJOÐUR íslands Slysavarnaskóli sjómanna
Sími 91-624884 • 985-20028
ÆGIR 19