Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1995, Qupperneq 23

Ægir - 01.06.1995, Qupperneq 23
í stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva. Stjórnarformaður Vestfirsks skelfisks hf. Finnur Ingólfsson Alþingismaður Reykvíkinga síðan 1991 fyrir Framsókn- arflokk. Varaþingmaður Reykvíkinga nóv.-des. 1987, okt.-nóv. 1988, maí 1989, jan.-febr. 1990. Aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1983-1987. Guðjón Guðmundsson Alþingismaður Vestlendinga síðan 1991 fyrir Sjálfstæðis- flokk. Starfsmaður hjá Haraldi Böðvarssyni & Co. 1959. í stjórn Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness i 20 ár. í stjórn Heimaskaga hf. í 12 ár. Stjórnarformaður útgerðarfé- lagsins Hafbjargar. Guðmundur Hallvarðsson Alþingismaður Reykvíkinga síðan 1991 fyrir Sjálfstæðis- flokk. Farmannapróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1966. Sjómennska á ýmsum fiskiskipum og kaupskipum 1957-1965. Stýrimaður á vitaskipinu Árvakri 1965-1970. Starfsmaður Sjómannafélags Reykjavíkur síðan 1972. í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur síðan 1972, formaður síðan 1978. Varaformaður Sjómannasambands íslands og varaformaður Sjómannadagssamtakanna í Reykjavík og Hafnarfiröi. Formaður hafnarstjórnar Reykjavíkurhafnar. Hefur á undanförnum árum átt sæti í fjölmörgum nefnd- um er lúta að sjávarútvegi og siglingum. í stjórn Lifeyris- sjóðs sjómanna. Halldór Ásgrímsson Alþingismaður Austurlands 1974-1978 og síðan 1979 fyr- ir Framsóknarflokk. Varaþingmaður Austurlands nóv.-des. 1978. Sjávarútvegsráðherra 1983-1991. Kristján Pálsson Alþingismaður Reyknesinga síðan 1995 fyrir Sjálfstæðis- flokk. Farmannapróf Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1967. Próf í útgerðartækni TÍ 1977. Sjómaður á fiskiskipum og farskipum 1960-1976. Framkvæmdastjóri Útvers hf. í Ólafsvík 1980-1986. í stjórn Útvers hf. í Ólafsvík 1986- 1988, formaður um skeið. Magnús Stefánsson Alþingismaður Framsóknarflokks á Vesturlandi 1995. Sjómennska 1987-1988. Þorsteinn Pálsson Alþingismaður Sunnlendinga síðan 1983 fyrir Sjálfstæðis- flokk. Sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra frá 1991. Við þennan lista má hugsanlega bæta Halldóri Blöndal, sem vann mörg sumur við hvalskurð, Jón Baldvini Hanni- balssyni, sem stundaði sjómennsku bæði með námi og eftir að því lauk, og Friðriki Sophussyni, sem var starfsmaður Hraðfrystihússins í Hnífsdal nokkur sumur eftir að hann varð þingmaður. Vera kann að fleiri alþingismenn hafi unnið við sjávarút- veg en ekki séð ástæðu til að geta þess í starfsferilsskrá sinni. □ WESTING SNURPUHRINGIR MEÐ STÁLHJÓLI Hólmaslóö 4, Reykjavík, sími 552 3333, telefax 552 3334 Sími í söludeild eftir kl. 5: 552 3336 Sími á netaverkstæði eftir kl. 5: 552 4127 ÆGIR 23

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.