Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1995, Page 24

Ægir - 01.06.1995, Page 24
KOMUR ERLENDRA FISKISKIPA DRJÚG BÚBÓT Tveir milljarðar - varlega áætlað Þórarinn Árnason, elsti starfsmaður Fiski- félags íslands, varpar Ijósi á nýja tekjulind I samantekt skýrsludeildar Fiskifélags Islands um landaöan afla erlendra skipa hérlendis sem fer áfram til vinnslu annars staðar (transit-afla) kom mörgum á óvart hve miklar tekjur íslenskir þjónustuabilar hafa af þjónustu við þessi skip. Eins og fram kom í síðasta tölublaði Ægis var um ab ræða alls 39.199 tonn árið 1994 og á feröinni voru 58 skip sem alls lönd- uðu 140 sinnum. Fiskifélagiö áætlar ab umrædd skip hafi að lágmarki keypt þjónustu fyrir samtals um 2 milljarba króna. En hvaða Jrjónusta er þab einkum sem skipin kaupa? 12-14 milljónir í tekjur af hverju skipi „Fragtin fyrir aflann áfram til Evrópu er stærsti þátturinn. Ég safnaði þessum tölum saman héðan og þaban og áætl- aði að hvert skip skildi eftir 12-14 milljónir í hvert sinn. Ég tel reyndar að þetta sé heldur lág tala vegna þess að tölur um viðgerðakostnað liggja ekki fyrir," sagði Þórarinn Árnason í samtali við Ægi. Þórarinn hefur starfað í skýrsludeild Fiskifélags íslands í 46 ár, frá árinu 1949, og segja kunnugir að enginn hefði getað dregið saman þessar tölur nema hann í krafti yfirgripsmik- illar þekkingar sinnar á atvinnu- greininni og fjölþættra persónulegra tengsla. Engin formleg tilkynninga- skylda er um þessi viðskipti í líkingu við það sem tíðkast um landanir ís- lenskra skipa. Þórarinn tekur sem dæmi erlendan togara sem hefur viðkomu á íslandi og kaupir olíu fyrir 5,2 milljónir, flutning á afla til Evrópu fyrir 4 milljónir, ýmis vörukaup skips nema 1,5 milljón, vara- hlutir og vinnulaun kosta 2 milljónir og þjónustu- og afgreiðslugjöld til ríkis og bæjarfélaga eru 400 þúsund. Alls verða þetta 13,2 milljónir. „í þessum tölum sem ég tek saman er ekkert tillit tekiö til hugsanlegra veiðarfærakaupa," segir Þórarinn. Rússneskir togarar eru stærstir í þess- um efnum, en 20 slíkir komu 43 sinn- um til íslands árið 1994. Grænlenskir rækjutogarar fylgja fast á eftir meb 14 skip og 30 landanir. Sex þýsk skip komu 20 sinnum en skip annarra þjóða sjaldnar. 24 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.