Ægir - 01.06.1995, Blaðsíða 26
Áætlaður afli og aflaverðmæti „íslenskra11 hentifánaskipa 1994
Landab hérlendis Landaö erlendis
Tonn Þús. kr. Uppistaða Tonn Uppistaba
Akraberg 3,0 101 Þorskur - Þorskur
Ammasat 5.954 23.503 Loöna -
Arctic Eagle 174,6 9.200 Þorskur 200 Saltfiskur
Arnarnés - - Rækja 280 Rækja
Fisherman 282,9 18.500 Þorskur 84 Saltfiskur
HágangurI 593,1 33.700 Þorskur - -
Hágangur II 812.2 41.200 Þorskur -■ -
Ottar Birting 1.801,4 107.000 Þorskur - -
Rex 277,5 19.300 Þorskur 128 Langa
Siglir 167,5 12.300 Þorskur - -
Vydunas 80,4 5.300 Úthafskarfi - -
upplýsingar og því er nafnbirting skip-
anna hér alfarið á ábyrgð blaðsins. Þessi
skip eru algjörlega utangarös í íslensk-
um sjávarútvegi og því er verulegur
fengur að tölum um afla þeirra því út-
gerðaraðilar þeirra hafa engar skyldur til
þess að gefa hann upp. Hér kemur aft-
ur til þekkingar Þórarins og persónu-
legra tengsla hans við fjölmarga aðila í
útveginum. Var eitthvað í þessum töl-
um sem kom Þórarni á óvart?
„Ég get varla sagt það. Það væri þá
helst það hve lítinn afla þess skip virð-
ast vera að fá og útgerð þeirra margra
virðist ganga brösulega. Ég hef átt mjög
gott samstarf við útgerðarmenn þessara
skipa og þeir hafa verið mjög sanr-
vinnuþýðir."
Hóf störf 1949
Þórarinn Árnason hóf störf hjá Fiski-
féiaginu 9. febrúar 1949 og hefur lengst-
an starfsaldur núverandi starfsmanna
þess. Hann man því tímana tvenna.
„Fyrstu árin sem ég vann hér þá var
Fiskifélag íslands nokkurskonar sjávar-
útvegsráöuneyti. Það gerðist fátt í þess-
ari atvinnugrein nema í gegnum Fiski-
félagið. Við önnuðumst margs konar
fyrirgreiðslu á vegum ríkisins, sáum um
sjóði, niöurgreiðslur og þess háttar,
meðal annars endurgreiðslur til fisksala
en um árabil á sjöunda áratugnum var
neyslufiskur niðurgreiddur."
Þannig var Þórarinn um 20 ára skeið
framkvæmdastj óri Aflatryggingarsjóðs
sem Fiskifélagið sá um og annaðist.
„Verksvið mitt hefur þó lengst af
VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKAi
FARAR-
QRODDI
VEM og KEB verksmiöjurnar framleiöa aliar helstu
stærðir og geröir raf- og gírmótora fyrir iönaö,
skip, landbúnað og ýmsar sérþarfir.
Höfum fyrirliggjandi allar algengustu stæröir
og gerðir og útvegum alla fáanlega mótora
meö skömmum fyrirvara.
Veitum tæknilega ráögjöf viö val á mótorum.
VEM og KEB - þýsk gæðavara á góöu veröi!
RAFVELAVERK-
STÆÐI FÁLKANS
Mótorvindingar,
dæluviögeröir
og allar almennar
rafvélaviögeröir.
90ÁRK
Þekking Reynsla Þjónusta'*
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SIMI: 581 4670 • FAX: 568 5884
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FÁLKANS
26 ÆGIR