Ægir - 01.01.1996, Síða 5
Sunnuberg selt:
Magnús fylgir með
„Vertíðin leggst vel í mig. Ég hef verið
skipstjóri á þessu skipi frá 1978 og er
Austfirðingur sjálfur," sagði Magnús Þorvalds-
son í samtali við
Ægi. Nótaskipið
Sunnuberg GK
199 hefur verið
selt frá Grindavík
til Vopnafjarðar
og hafa Vopna-
fjarðarhreppur og
Tangi hf. sam-
einast um kaupin.
Magnús fylgir
skipinu austur og
verður áfram með
það. Hann er öll-
um hnútum
þessa skips kunn-
ugur því hann
hefur verið skipstjóri á því frá 1978 og
jafnan aflað vel en Magnús er í hópi
reyndari nótaskipstjóra í flotanum. Hann
hóf skipstjórnarferil sinn um borð i Heimi
SU 100 frá Stöðvarfirði árið 1966 og veiddi
síld í Norðursjó eftir aö hún hvarf af
íslandsmiöum.
Sunnubergið á glæstan feril að baki.
Skipið er 385 brt. að stærð smíðað í Harstad
í Noregi 1966 og hét þá Gísli Árni RE. Sama
árið setti Eggert Gíslason skipstjóri á því
síldveiðimet sem stóð allt til ársins 1994.
Undir stjórn Eggerts var Gísli Árni rómað
aflaskip og útgerð þess jafnan með
myndarbrag. Eggert hætti 1978 og lét
Magnúsi eftir stjórn skipsins og hefur hann
fylgt því síðan.
Sunnubergið var lengt og yfirbyggt að
hluta 1973 en yfirbyggt að fullu 1977 og
lengt aftur 1990. Núverandi aðalvél er 1500
ha. Wichmann sem var sett niður i það
1977. Skipinu fylgir austur 1% hlutdeild í
lobnukvóta sem 1995/96 er rúm 15 þúsund
tonn.
„Þab er vel á sig komið miðað vib það
sem gerist um loðnuskip. Þvi hefur verið
haldið vel við og var seinast tekið í gegn
1990."
Magnús Þorvaldsson skip-
stjóri á Sunnubergi GK 199.
FISKUR IHÁNAÐARINS
Fiskur mánaðarins er eftirsóttur og talinn í hættu vegna ofveiði. Þetta er
grálúða (Reinhardtius hippoglossoides), einnig kölluð svartaspraka.
Stærsta grálúða sem veiðst hefur við ísland var 122 cm og 20 kg, en
fiskar yfir 100 cm eru sjaldséðir.
Grálúðan er dökkbrún, dökkgrá eða rauögrá á
hægri hlið en grá eða ljósari á vinstri hlib.
Heimkynni hennar eru í N-Atlantshafi og
Barentshafi en hún flækist víða og merk-
ingar sýna ab hún ferðast frá Græn-
landi til íslands og af íslandsmiðum
austur í Barentshaf og til Hjaltlands. Hún
er botnfiskur sem lifir á leirbotni og helstu heimkynni hennar við ísland
eru við suöurströndina. Hún étur fiska og krabbadýr en helstu óvinir
hennar eru maður, hákarl og hvalir.
Grálúðan verður kynþroska 9-12 ára og það eru einkum Norðmenn,
íslendingar og Rússar sem veiða hana en hún er eftirsóttur matfiskur í háu
verði.
UMHVERFISlfÆN SKIP
Talið er að árlega renni 500 þúsund tonn af olíu í einu eða öðru formi í
heimshöfin. 60% af þessari mengun má rekja til starfsemi í landi en 40%
eiga rót sína að rekja til skipaflota heimsins. Kaupskipafloti heimsins, þar
með talin olíuflutningaskip sem talin eru helstu sökudólgar í þessum efnum,
telur 80 þúsund skip alls. Þessi floti hefur á undanförnum árum flutt um
fjóra milljarða tonna af efnum og varningi um heimshöfin og því Ijóst að
miklir hagsmunir eru í húfi.
Utblásturinn er sú mengunaruppspretta sem menn vildu helst geta
dregið úr en það nemur um 10 milljónum tonna á ári sem flotinn blæs út í
andrúmsloftið. Til þess að kaupskipaflotinn teldist umhverfisvænn þyrfti að
draga úr útblástursmengun um 40-60% að jafnaði. Af þeirri olíumengun
sem skip heimsins valda í höfunum er talið að 80% verði við dagleg störf
og þrif um borð í skipunum svo augljóst er að mikið svigrúm er til framfara
á þessu sviði. Hófstillt notkun á hreinsiefnum og vönduð vinnubrögð við
útskolanir og olíuskipti eru hér talin skipta mestu máli.
Sé litið á heildarmengun sem stafar frá einu skipi er hún margvísleg.
Útblástur er eitt og olíuleki annað en hann skiptist í olíumengun frá
vélarrúmi og olíumengun frá farmi. Uppgufun af óheilnæmum efnum í farmi
veldur mengun og það gerir einnig farmur sem fer fyrir borð. Vatn úr
tönkum sem er skolað út inniheldur ýmis mengandi efni og málning á
skipsskrokkum leysist upp og eitruð efnasambönd úr henni skolast út í
sjó. Af þessu má Ijóst vera að skipafloti heimsins er mikil uppspretta
mengunar og með mörgum þjóðum er unnið að því að ráða bót á því.
(Skipsrevyen - október 1995)
ÆGIR 5