Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 17

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 17
Þorskveiðarnar í Smugunni og botnfiskstofnar í Barentshafi Dr. Sigfús A. Schopka Undanfarið hefur mikið verið rætt um þorskveiðar okkar í Smugunni og um- gengni um auðlindina þar. En hvers konar þorsk erum við að veiða þarna og hvernig er ástand botn- fiskstofna í Barentshafi um þessar mundir? Frá því að íslendingar hófu veiðar í Smugunni árið 1993 hefur Hafrannsókna- stofnunin aflað gagna um veiðarnar eftir því sem við verður komið hverju sinni með sýnatöku úr lönduð- um afla hér heima og eins með dyggilegri aðstoð Landhelgisgæslunnar á miðum úti. Smugan liggur nokkum veginn í miðju Barentshafi. Veið- ar okkar á þessu svæði eru svo til eingöngu þorskur sem tek- inn er í flotvörpu upp í sjó. Árið 1993 veiddum við þarna 9.374 tonn af þorski og vorum fjórðu í röðinni það ár hvað þorskaflamagn snerti úr Barentshafi, næstir á eftir Norb- mönnum, Rússum og Færeyingum (1. mynd). Afli af öðmm tegundum var sáralítill, mest veiddist af hlýra, 216 tonn, og 56 tonn af grálúðu, en annar afli botnfisktegunda nam ab- eins 31 tonni. Haustið 1993 var mikið rætt um smáfiskadráp í Smug- unni. Mælingar sýndu að þorskurinn stóbst þá hvorki íslensk viðmiðunarmörk (25% undir 55 cm) né norsk viðmiðunar- mörk (15% undir 47 cm) og leiddi það til þess að sjávarút- vegsráðuneytið gaf út reglugerö þar sem veiðar vom bann- aðar í sunnanverðri Smugunni fram til áramóta 1993/1994. Eftir að skipin færbu sig norðar í Smugunni glæddist aflinn og reyndist fiskurinn þar mun vænni. Aldursgreiningar sýndu ab nær annar hver fiskur þarna var 10 ára gamall, af stóra árganginum frá 1983. Næstalgengasti aldursflokkurinn í veiðunum var aftur á móti fjögurra ára fiskur af árgangi 1989 en það var þá skásti árgangurinn sem fram var kominn í veiðistofninn síban 1983. Árib 1994 hófust veiðar aftur í Smugunni af krafti er líða tók á sumarið. Þær fóru hægt að stað en vel aflaðist í ágúst- september, oft mokafli (2. mynd). Þetta haust sendi Land- helgisgæslan varðskip á miðin og mældu varðskipsmenn stærð þorsksins og söfnuðu jafnframt kvörnum til aldurs- greiningar. Mun minna mældist af smáþorski en árið áður og gáfu mælingar varðskipsmanna ekki tilefni til lokana. Fjöldi þorska undir 47 cm reyndist vera á bilinu 0-10%. Aldursdreifing á veiðum íslendinga var á þann veg að mest veiddist af fimm ára þorski, þ.e. af árgangi 1989, og var annar hver þorskur jafnan af þessum árgangi. Meðallengd hans var 69 cm. Næstalgengastur var fjögurra ára þorskur, af árgangi 1990 (með 20% hlutdeild), en þessi árgangur er tal- 2. mynd: Þorskveiðar íslendinga í Smugunni. Dr. Sigfús A. Schopka. ÆGIR 1 7

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.