Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 28

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 28
„Hitt er svo annað mál að ég tel að það hafi verið gert afillri nauðsyn og hefði í raun ekki þurft að gerast ef stjórnendur FFSI hefðu hlustað á okkur og tekið tillit til sanngjarnra krafha okkar. Þá hefði ekki þurft að koma til þessa sem ég sé síður en svo eftir í dag. En þeirra klaufaskapur og sjálfsánœgja átti stœrstan þátt í að við yfirgáfum FFSÍ." tryggja sjómönnum jafnræði við út- gerðarmenn í fiskverðsdeilum, sem var spurning um mannréttindi, og tilvist hennar hefur greinilega haft töluverð áhrif. „Ég er þokkalega ánægbur með störf nefndarinnar en hlýt að viðurkenna að kvótabrask sem slíkt hefur ekki enn í neinum mæli komiö til kasta nefndarinnar en hafa ber í huga að í þessum efnum gerist ekkert á einni nóttu frekar en meb Róm forðum. Almennt má segja um þessa nefnd að hún þarf að vera til staðar fyrst og fremst til þess að tryggja ab viðkomandi aðilar komi sér saman um eðlilegt fiskverð. Best er ab hennar verkefni séu sem fæst. Vélstjórafélagiö var abili að Farmanna- og fiskimannasambandi íslands frá stofnun þess 1937 og reyndar voru vélstjórar helstu hvata- menn ab stofnun sambandsins. Þeir voru um 40% félagsmanna í FFSÍ allt til 1. ágúst 1991 þegar Vélstjórafélagið sagði sig úr lögum við FFSÍ og stendur nú eitt og óstutt. Þetta þýbir að félagið þarf ekki að hafa samflot í kjara- samningum, er ekki aðili að samþykkt- um FFSÍ og er ekki lengur aðili að blaðaútgáfu eba öðru því sem FFSÍ tekur sér fyrir hendur. Málaferli vegna skipta á eignum Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands og Vélstjórafélags íslands standa yfir og ekki ljóst á þessari stundu hvenær niðurstaða fæst. Skilnaður að borði og sæng „Við höfum verið með um 40% félagsmanna frá upphafi en á 50 ára afmæli FFSÍ höfðum t.d. við átt forseta sambandsins í 8 ár frá stofnun þess sem synir ef til vill betur en margt annað hverjir hafa ráðib ferð innan sam- bandsins í gegnum tíðina. Til vibbótar höfðum vib yfirleitt verið með færri menn í stjórn en fjöldi vélstjóra innan sambandsins gaf tilefni til. Staðreyndin er sú að samtökin eru fyrst og fremst samtök skipstjóra og stýrimanna. Við gerðum okkur einfaldlega grein fyrir því að við höfðum engan hag af því að vera þarna innanborðs, höfðum þangað ekkert að sækja." Er naubsynlegt að standa í mála- ferium við fyrrum félaga sína vegna eigna félagsins? „Við fengum Viðar Má Matthíasson hrl. til þess að gefa okkur lögfræðilegt álit á því hvort hann teldi að við ættum tilkali til eigna FFSÍ. Hans álit var ótvírætt í þá átt. Meb það í hendi var stjórn félagsins ekki stætt á að hafast ekkert að í málinu, við höfum einfald- lega ekki heimild til þess. Þá hefbum við verið að láta af hendi eigur félagsins án þess ab halda uppi eðlilegum vörnum. Þetta er bara eins og hver annar hjónaskilnaður. Það er ekkert óeðlilegt við það að tekist sé á um hlutina. Hér er um allnokkra fjármuni aö tefla. Við höfum einnig deilt um fjármuni á svokölluðum "greiöslumiðlunar- reikningi" en það er tekið sérstakt gjald, eða um 0.16%, af óskiptum afla sem gengur til samtaka sjómanna og útgerða, sem lækkar hlut sjómanna um sama hlutfall. Af þessum fjármunum fékk LÍÚ um 34 milljónir í tekjur á síðasta ári, Farmanna- og fiskimanna- sambandið um 9.2 milljónir en við um 4.6 milljónir. Þegar við gehgum út úr FFSÍ var reynt mikið til þess að semja vib þá um skiptingu þessara fjármuna, en sá hluti þeirra sem lækkar kjör félagsmanna VSFÍ er einfaldlega ekki eign FFSÍ. Það tókst ekki fyrr en með lagabreytingum á Alþingi eftir mikið stapp og vesen sem sýnir nú ef til vill býsna glöggt réttlætiskennd þessara ágætu manna. Þótt vib höfum nokkrum árangri náð erum ekki sáttir við okkar hlut teljum að hann eigi að vera hærri sé tekið mib af félagafjölda eins og lögin gera ráb fyrir." Klaufaskapur og sjálfsánægja FFSÍ „Meöan við vorum aðilar að FFSÍ runnu frá okkar félagi um 6 milljónir árlega í til sambandsins þegar ailt er taliö og okkur fannst vib fá litla sem enga þjónustu né aðstoð í staðinn. Þetta varb með öðru til þess að við ákváðum að stíga þetta skref. Hitt er svo annað mál að ég tel að það hafi verið gert af illri nauösyn og 28 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.