Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 20

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 20
vegna lélegrar nýliðunar og komst í lágmark árib 1984, í að- eins 700 þús. tonna stærð. Þegar litið er á þróun veiðidánartölu (7. mynd) fór hún fyrst hratt vaxandi og komst í hámark árið 1964, minnkaði nokkuð næstu ár, bæði vegna lakari aflabragða og þess að síidveiðar voru miklar á þessum árum. Þegar síldarstofninn hrundi þá óx aftur sóknin í Barentshaf. Hámarki náði veiði- dauðinn árið 1987 og var þá veiðidánartala þorsks nálægt 70% næstu tvö ár. Með ströngum veiðitakmörkunum tókst að draga svo úr veiöidauða að árin 1990-1992 var hann lægri heldur en fyrstu árin eftir 1950. Þab var ekki aö sökum að spyrja að stofninn rétti fljótt við og fór hrygningarstofn, sem var kominn niður í 150 þús. tonn 1988, í um og yfir milljón tonn árið 1991. Hann er nú áætlaöur um 800 þús. tonn. Nýliðun í stofninn hefur verið allbreytileg (8. mynd). Árin 1950-1978 voru flestir árgangar af meðalstærð, sumir mjög sterkir en aðeins á árunum 1968-1970 komu þrír iakir ár- gangar í veiðistofn, þ.e. árgangar 1965-1967. Á bilinu 1979-1984 komu sex lakir árgangar inn í veiðistofninn í röb og aðeins 1983 árgangurinn reyndist verulega stór. í kjölfar hans fylgdu nokkrir aörir lakir árgangar fram undir 1990. Nýliðun hefur verið allþokkaleg síðan árið 1989. Nýjustu fréttir úr seiðaleiðangri 1995 bendir tii að enn einn stór ár- gangur sé í uppsiglingu. Með úthlutuðum kvóta 1995 er búist viö einhverri afla- minnkun miðað við árið 1994 og sama kvóta hefur verið úthlutað fyrir 1996 eins og fyrir árið 1995. Þaö liggur fyrir að aukin sókn mun ekki skila sér í meiri afrakstri til lengri tíma litið. Önnur teikn sem eru á lofti og gætu dregið úr vexti stofnsins og viðgangi eru minna fæðuframboð og kólnun í Barentshafi. Því hefur verið spáð og byggt á lang- tímamælingum að sjávarhiti færi lækkandi, en svo myndi hlýna aftur undir aidamót. Ekki hefur enn bólað á þessari kólnun. Kólnun myndi að öllum líkindum draga úr fisk- gengd í Smugunni. Hvað æti snertir er ioðnustofninn nán- ast hruninn, svo að þorskurinn hefur orbið að snúa sér að annarri fæðu í ríkari mæli. Engan bata er að sjá í loðnu- stofninum í náinni framtíð og klakið virbist afar iélegt. Lít- il loðnugengd hefur hægt á vexti a.m.k. stærri árganganna (9. mynd) og leitt til þess að sjálfrán þorsks hefur aukist. Sjálfránið beinist að smæsta þorskinum og skörð höggvin í nýliða áður en þeir koma fram í veiðistofni. Kvebi rammt að þessu hefur þab áhrif á nýliðunartölur og þar með af- rakstur stofnsins. Ýsa Útbreiðsla ýsu takmarkast við grunnslóðina meðfram ströndum Noregs og í Barentshafi. Meðaiýsuaflinn árin 1950-1975 var um 120 þús. tonn. Þá fór aflinn hratt minnk- andi og komst í lágmark árið 1984, aðeins 17 þús. tonn (10. mynd). Mestur varð hins vegar aflinn árið 1973 en þá fór hann upp í 320 þús. tonn. Síðan árið 1984 hefur afli aðeins tvisvar farið yfir 100 þús. tonn, árið 1987 í 150 þús. tonn 8. mynd: Barentshafs-þorskur. Nýliðun. 10. mynd: Barentshafs-ýsa. Afli 1950-1995. 20 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.