Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 15
FISKVERKENDUR - UTCERÐAMENN!
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar býður nú um 30 mismunandi námskeið og fyrirlestra fyrir
starfsfólk sjávarútvegsins.
Hluti námsefnis:
Vinnuöryggi • Hreinlætismál • Hráefnismeðferð • Mannleg samskipti
Verkkennsla • Handflökun • Innra eftirlit • Heilsuvernd • Gæðastjórnun • Rekstraráætlanir
Markaðsmál • Kjaramál
Haföu samband efþú et~t ífrœðsluhiigleiðingiim
Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, sími 560 9670
Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir Sjávarútvegs-
ráðuneytið og er hlutverk hennar að skipuleggja fræðslustarfsemi
fyrir starfsfólk í fiskiðnaði. Nefndin er skipuð fulltrúum frá ráðu-
neytinu, samtökum atvinnurekenda og Verkamannasambandi
íslands.
REYTINGUR
22 voru kærðir á árinu
A árinu 1995 veitti Fiskistofa fjölmargar áminningar þeim
sem gengu á svig við settar reglur og lög um fiskveiðar og
meðferð afla. Stundum hrukku slíkar áminningar skammt og var
þá málum vísað til lögreglu samkvæmt laganna skikk.
Alls voru 22 tilvik kærð til lögreglu á árinu 1995. 14 mál
teljast upplýst en 14 var vísað til ríkissaksóknara. í 6 tilvikum
hefur verið gefin út ákæra og dómar hafa gengið í þremur
málum. í sex tilvikum var beitt sviptingu leyfis í tengslum við
rannsókn mála.
Þetta er samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu en ekki liggja
fyrir sambærilegar tölur frá árinu 1994 svo ekki verður séð
hvort siðferði fer fram eða aftur.
Rannsókn mála af þessu tagi er í samvinnu lögreglu og
veiðieftirlits Fiskistofu. Viðurlög eru með ýmsum hætti,
refsiviðurlög eru ákvörðuð af dómara og eru oftast sektir.
Oftast er um að ræða stjómsýsluviðurlög og er ákvörðun um
þau ýmist tekin af Fiskistofu eða sjávarútvegsráðuneyti og
algengust er álagning gjalds vegna ólögmæts afla eða svipting
leyfis til veiða, vinnslu eða vigtunar.
Norömenn langar til Kína
Norðmenn beina nú sjónum sínum í auknum mæli til Kína
sem freistandi markaðar fyrir fisk og fiskafurðir. Eftir því
lífskjör kínversku þjóðarinnar batna og kaupgeta almennings
eykst verður markaðurinn stöðugt hagstæðari.
Kína opnast stöðugt meira í vesturátt og styrkir tengsl sín
við vestræn samfélög með samvinnu og þátttöku vestrænna
fyrirtækja í hverskonar uppbyggingu sem er mikil um þessar
mundir.
En Kína er mesta fiskveiðiþjóð heims sem veiddi 1 8.3
milljónir tonna 1993 og hefur afli vaxið mjög mikið frá því að
fyrstu efnahagsumbætur voru gerðar 1978. Margir
fiskistofnar við Kína eru ofveiddir og þrátt fyrir mikla
uppbyggingu í fiskeldi eykst þörf þeirra fyrir innflutning
stöðugt. Norskir útflytjendur er viðbúnir og í september
1995 var mikil matvælasýning í Shanghai sem margir þeirra
tóku þátt í. 1996 hyggja norskir aðilar á þátttöku í mikilli
vörusýningu sem haldin verður í Kína og mun eingöngu
snúast um sjávarútveg og fiskvinnslu.
f dag eru Kínverjar ca. 1200 milljónir og fiskneysla á
mann er að meðaltali 15 kíló á mann árlega og fer
vaxandi.
(Fiskaren- des. 1995)
ÆGIR 15