Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 36

Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 36
Skipið hefur frá upphafi borið sama nafn og verið í eigu sömu útgerðar. Skip- ið er smíðað árið 1975 (afhent í janúar) hjá Bátservice Verft A/S í Mandal í Noregi, smíðanúmer 617 hjá stöðinni. Skipið er í hópi fjögurra systurskipa, smíðuð hjá sömu stöð, Gullberg VE hið fyrsta í röðinni, en síðan í tímaröð: Huginn VE 55 (1411) í janúar 1975; Árni Sigurður AK 370 (1413), nú Höfrungur AK 91 í febrúar 1975; og Skarðsvík SH 205 (1416), nú Arney KE 50, í mars 1975. Breytingar sem áður hafa verið gerðar á skipinu eru þessar helstar: Árið 1976 er byggt yfir aðalþilfar þess frá hvalbak að yfirbyggingu að aftan. Árið 1978 er brú skipsins lyft með hækkun á reisn þannig að þilfarshús myndast undir brúnni og árið 1988 er smíðaður nýr skutur (gafllaga) um 2.0 m lengri og sett perustefni á skipið. Það sama ár er settur nýr aðalvélarbúnaður í skipið, í stað beintengdrar 1250 ha Wichmann aðalvélar 2040 ha niðurgíruð Mak aðalvél, auk þess stækk- un á hliðarskrúfum o.fl. færslublökk af gerð Triplex TRH 70. Þá var núverandi kraftblökk flutt framar. Losunarkrani: í skipið var settur nýr krani frá Sormec af gerð T2000 M28/2S, Almenn lýsing Gerð skips: Nóta- og togveiðiskip. Smíðastöð: Bátservice Verft A/S, Man- dal í Noregi, smíðanúmer 617. Afhending: Janúar 1975 Flokkun: Skipið var byggt í flokki Det Norske Veritas, en skipt yfir í SR, 1984-02. 28 tm, lyftigeta 2.5 tonn við 10.5 m arm. Nýi kraninn er á efra þilfari, s.b,- megin, aftast á lengingarstykkinn, og er búinn sér rafdrifinni dælustöð, 30 KW. Fyrirkomulag: Tvö þilför stafna á milli, sjö vatnsþétt þverskipsþil undir neðra þilfari, perustefni og gafllaga skutur, hvalbakur fremst á efra þilfari, þilfars- hús og brú aftan miðskips á efra þilfari. Aðalmál: Mesta lengd 53.60 m Lengd milli lóðlína 45.84 m Breidd (mótuð) 8.20 m Dýpt að efra þilfari 6.45 m Dýpt að neðra þilfari 4.20 m Rými og stœrðir: Eiginþyngd 759 1 Særými (0-fríborð) 1143 t Lestarými (alls) 910 m3 Brennsluolíugeymar 71 m3 Ferskvatnsgeymar 42 m3 Stafnhylki (sjór) 33 m3 Mceling: Rúmlestatala 427 Brl Brúttótonnatala 639 BT Rúmtala 1578.7 m3 Vélbúnaður Aðalvél: Mak 8M-332, átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu, 1500 KW (2040 hö) við 900 sn/mín. Gír- og skrúfubúnaður: Ulstein 600 AGSC-HT, niðurgírun 5.44:1, 4ra blaða skrúfa, 2700 mm þvermál í hring. Ásrafall: Siemens 1FC6 406-4, 404 KW (505 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz breyti- legur snúningshraði 736-900 sn/mín (45-55Hz). Deiligír: Hytek FGT 650/500-4HC með úttök fyrir hliðarskrúfu-, vindu- og kraftblakkardælur. Dælur eru tvær Bruninghaus 732DZ breytilegar stimpildælur fyrir hliðarskrúfur, þrjár Voith (IPH 6/6/4-125/125/32, IPH 6/6-125/125 og IPH 6/6/5 100/100/40) fyrir aðalvindu- og kraftblakkarbúnað, ein Vickers 3525V38A21 fyrir hjálparvindur framskips og ein Vickers 4525V60A21 fyrir fiskidælu. Hjálparvélasamstœður: Ein Scania Vabis DS-11, 128 KW (175 hö) við 1500 sn/mín, með ECC rafal, 104 KW (130 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz. Ein Hatz 4L40C hafnarljósavél, 26 KW (35 hö) vib 1500 sn/mín, með Stamford rafal, 22 KW (27.5 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz. Stýrisvél: Tenfjord 6M200/20M415, tengd Ulstein HLR018 uggastýri. Hliðarskrúfur: 2 x Ulstein 24 T, 240 ha vökvadrifnar fastar skrúfur, ab framan og aftan. Rafkerfi: 3 x 380 V/220 V, 50 Hz. SKIPIÐ NÚ - STUTT LÝSING 36 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.