Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 14
Flestar hafnir í Namibíu eru í einkaeign og því fer enginn inn á hafnarsvœðið nema eiga þang-
að erindi eða vera í vinnu. Við lœst hliðið híma þeir sem ekki fengu vinnu þennan daginn.
seljum við þangað fyrir 20 milljónir og
við eigum vel að geta tvöfaldað þá upp-
hæð á næsta ári.
Við erum komnir inn hjá stærstu fyr-
irtækjunum á þessum slóðum, við erum
með eina skipið sem er með leyfi til
rannsókna á búrfiskveiðum frá Namib-
íu, við erum í viðræðum við aðila sem
gera út frá Mossel Bay sem er á austur-
ströndinni og enn aðra sem gera út á
rækju frá Mozambique svo við erum
harla ánægðir."
Sýningin í Cape Town var sú 83. sem
J. Hinriksson hf. tekur þátt í á ferlinum.
Verið að landa úr dœmigerðum túnfiskbát í Suður-Afríku. Hver fiskur er handlangaður
uþþ á vörubíl og ekki virðist fara mikið fyrir vélvœðingu. Túnfiskurinn er veiddur á línu og
er verðmcet afurð. Á bryggjunni má sjá Vilhjálm Ólafsson á tali við skipstjórann.
Hallsteinn Stefánsson og Sigurgeir Péturs-
son eru tveir íslenskir skipstjórar sem eru
búsettir á Nýja-Sjálandi. Þar stýra þeir
Austral Leader sem er 80 metra frystitogari
gerður út á veiðar á alþjóðlegu hafsvœði.
Hallsteinn og Sigurgeir nota Poly-Ice tog-
hlera.
Fyrirtækið hefur verið óragt við aö
leggja land undir fót og fór t.d. 1983 á
sýningu í Melbourne í Ástralíu fyrst ís-
lenskra fyrirtækja. Því er ekki úr vegi að
spyrja hve mikilvægar slíkar sýningar
séu í markaðssetningu erlendis.
„Þær eru einn hlekkurinn í markaðs-
setningu. Best er að vera kominn aðeins
með fótfestu á markaðnum áður en
taka skal þátt í svona sýningu.
Bestu sölumennirnir okkar eru ís-
lenskir skipstjórnarmenn sem starfa hér
og þar um heiminn. Þar sem þeir eru
þar erum við."
Stóraukin sókn íslenskra iðnfyrir-
tækja á erlendan markað undanfarin ár
hefur vakið athygli og á sérstaklega við í
sjávarútvegi. J. Hinriksson framleiðir
klettþunga toghlera sem eru fluttir
heimshorna á milli og sýndir og seldir.
Er ekki sóknin á erlendan markað dýr?
„Hún er mjög dýr. Islensk fyrirtæki
njóta ákveðinnar aðstoðar og styrkja frá
Iönlánasjóði að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum til markaðssetningar á nýjum
mörkuðum. Þetta finnst okkur eðlileg
aðstoð en við verðum að sýna fram á ár-
angur, þ.e. sölu. Við erum sáttir við það
hvernig staðið er að þessu.
Við kynnumst því reyndar á þessum
vörusýningum að við stöndum á þessu
sviði mjög langt að baki nágranna- og
samkeppnisþjóðum okkar þar sem mun
hærri styrkir tiðkast." □
14 ÆGIR