Ægir - 01.01.1996, Síða 6
Að vera fagmaður á sjálfan sig
Verkstjórar og millistjórnendur á námskeiði
„Mér finnst lærdómsrík á þessu nám-
skeiði, sú áhersla sem er lögð á einstakl-
inginn, stjórnandann sjálfan og hvað
það skiptir miklu máli að hann þekki
sjálfan sig og átti sig á því að starf hans
byggist á því að vera fagmaður á fólk.
Til þess þarf hann að vera fagmaður á
sjálfan sig.
Ég hef lært mikið á þessu námskeiði
og það hefur verið farið yfir mikið efni á
stuttum tíma. Þetta hefur tekist mjög
vel og uppfyllir mínar væntingar að
öllu leyti.
Staðarval var gott og einnig val á
leiðbeinendum.
Maður lærir að vera hluti af heild og
margt af því sem hér hefur veriö fjallað
um mun nýtast í starfi til iengri tíma
litið. Hér eru ekki kenndar neinar
patentlausnir en vonandi verður námið
til þess að við verðum betri í því sem
við vinnum við.
Það hefur verið unnið mikið í
starfsfræðslu og menntun starfsfólks og
mikil hagræðing verið í gangi í
greininni undanfarin ár. Þróun mun
halda áfram og menntun stjórnenda á
þessu sviði er mjög mikilvæg því í
öllum breytingum og þróun er
mannlegi þátturinn meðal þeirra
mikilvægustu en jafnframt viðkvæm-
astur."
Þetta sagði Svavar Svavarsson
framleiðslustjóri Granda í samtali við
Ægi í byrjun janúar. Svavar hefur unnið
við verkstjórn frá 1975 en í 10 ár hjá
Granda.
Samtök fiskvinnslustöðva og Starfs-
fræðslunefnd fiskvinnslunnar héldu
námskeið fyrir verkstjóra og millistjórn-
endur í fiskvinnslu og fór það fram á
Norræna skólasetrinu á Hvalfjarðar-
strönd dagana 3-6 janúar s.l.
Þátttakendur voru 25 talsins frá 5
fyrirtækjum en áhersla var lögð á að
allir millistjórnendur frá hverju
Svavar Svavarsson hefar unnið við
verkstjóm frá 1975 en í 10 ár hjá Granda.
fyrirtæki gætu komið. Fyrirtækin sem
þátt tóku í námskeiðinu voru Grandi
hf., Hraðfrystihús Eskifjarðar hf., Meit-
illinn hf., Útgerðarfélag Akureyringa hf.
og Fiskiöjan Skagfirðingur.
Kennarar voru tveir, þeir Þórður S.
Óskarsson vinnusálfræðingur og kenn-
ari við Háskóla íslands og Magnús
Pálsson rekstrarráðgjafi og íþrótta-
kennari.
í fínu formi
Námskeiðið bar yfirskriftina: í fínu
formi, og námið fór fram í fyrirlestrum,
persónuleikaprófum, umræðuhópum,
hópverkefnum, einstaklingsverkefnum,
umræðum, gönguferðum, leikjum og
leikfimisæfingum. Allt var miðað við að
rannsaka mannleg samskipti, hæfileik-
ann til þess að stjórna fólki og beita
sjálfsþekkingu til þess að gera stjórn-
endur betri. Fyrst var horft á einstakl-
inginn en sjónhornið smátt og smátt
Ailir þátttakendur á námskeiðinu ásamt leiðbeinendum.
6 ÆGIR