Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 7
Kröftugar fcerfislausnir
Marel býður allt frá stökum tækjum til heildarlausna um borð í skipum
✓ Vogir
✓ Flæðivogir
✓ Flokkarar
✓ Snyrtilínur
✓ Skurðarvélar
>/ Pökkunarlínur
✓ Vinnslutilhögun
Marel • Höfðabakki 9*112 Reykjavík
Sími: 563 8000 • Fax: 563 8001
stækkað til þess að skoða einstaklinginn í hópnum,
samskiptin við aðra, einstaklinginn og fyrirtækið og síðast
fyrirtækjabraginn og það sem myndar hann. í
námskeiðslýsingu segir að heiti námskeiðsins feli í sér
áskorun um að ná árangri á öllum þeim ólíku sviðum sem
verkstjórar þurfa að sinna í starfi sínu. Saman mynda
þættirnir eins konar keöju sem þarf að standa af sér alla
huglæga sem hlutlæga storma sem dynja á íslenskum
sjávarútvegi og fiskvinnslu.
Námskeið þetta varð til með þeim hætti að í síðustu
kjarasamningum verkstjóra var ákvæði um aö gefa skyldi
verkstjórum kost á endurmenntun í sínu fagi. Samtök
fiskvinnslustöðva könnuðu meðal sinna félagsmanna á
hvaöa sviði þörfin væri brýnust og í undirbúningshópi,
sem í sátu meðal annars Svavar Svavarsson framleiðslustjóri
Granda, Gunnar B. Aspar framleiðslustjóri hjá ÚA, Ævar
Agnarsson framleiðslustjóri Meitilsins í Þorlákshöfn og
Haukur Björnsson rekstrarstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar,
kom skýrt fram að einmitt á ýmsum sviðum mannlegra
samskipta væri kominn tími til þess að endurnýja. Þeir
Þórður Óskarsson og Magnús Pálsson voru síðan fengnir til
þess að hanna námskeiðið ef svo má að orði komast og það
var svo Gissur Pétursson, fulltrúi í sjávarútvegsráðuneyti,
sem veitir forstöðu Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar, sem
fékk það hlutverk að skipuleggja námskeiðið þ.e. staö og
tíma og skrá og boða nemendur. □
VINUR
VÉLSTJÓRANS
ER SÉRSTAKLEGA FRAMLEITT TIL
ÞRIFA í VÉLARÚMUM SKIPA
VINUR VÉLSTJÓRANS ER HÁALKALÍSKT HREINSIEFNI.
VIN VÉLSTJÓRANS má blanda (þynna) með vatni eftir þörfum og
aðstæðum. Heppilegt blöndunarhlutfall 1:5-1:15. Nauðsynlegter
að skola vel með vatni eftir hreinsun (t.d. með háþrýstitæki), volgt
eða heitt vatn 50° - 60° gefur bestan árangur.
LÁTIÐ VIN VÉLSTJÓRANS EKKI þorna á því sem verið er að
hreinsa.
VINUR VÉLSTJÓRANS er ekki eldfimt efni.
VINUR VÉLSTJÓRANS ER UMHVERFISVÆNT HREINSIEFNI.
INNIHELDUR yfirborðsvirk efni, fosfat, metasilikat. pH-gildi ca. 12.0.
ÆGIR 7