Ægir - 01.01.1996, Blaðsíða 11
Hinrikssonar hf. áleiðis til Namibíu og
Suður-Afríku.
Lengst til vinstri er Grétar Hjartarson sem hætti að vera bíðstjóri í Laugarásbíói og er nú að-
stoðarskólastjóri í Walvis Bay Maritime School í Namibíu, við hlið hans stendur Dave Nar-
burge og lengst til hcegri erAtli jósafatsson að afhenda þeim féiögum líkan afPoly-Ice hlera.
Seldu þeim stærstu
„Þessi sýning var áþekk mörgum öðr-
um sem við höfum sótt enda sett upp af
Emap-fyrirtækinu í Bretlandi sem í eru
atvinnumenn í þessu fagi og sjá m.a.
um sýningar í Aberdeen. Þarna sýndu
tólf íslensk fyrirtæki framleiðslu sína,"
sagði Atli Jósafatsson í samtali við Ægi.
„Við komust þarna í tengsl við og
gerðum samninga við gífurlega stór fyr-
irtæki, eins og Sea Harvest og Irving &
Johnson í Suður-Afríku, og fengum fyr-
irspurnir frá fjölda fyrirtækja víða í
Afríku svo við erum tiltölulega mjög
ánægðir með þátttöku okkar."
Sea Harvest og Irving & Johnson eiga
stóran hluta lýsingskvóta Suður-Afríku
og eru stórfyrirtæki á íslenskan mæli-
kvarða, hvort meb um 50 þúsund
tonna kvóta og 18 til 20 skip.
Höfuðborg Namibíu er Windhoek en
helstu útgerðarbæirnir eru Walvis Bay
og Luderitz, en svo heitir bær þar sem
talsvert margir íslendingar búa, og þar
eru bækistöövar Seaflower Whitefish
Corporation sem er útgerðarfyrirtæki í
eigu íslendinga og heimamanna og er
unnið að uppbyggingu bæði útgerðar
og fiskiðnaðar á svæðinu. Einnig eru ís-
lendingar með starfsemi í Walvis Bay og
Swakopmund.
Fiskveiðar á uppleið
Fiskveiðin byggir helst á lýsingi sem
nú má veiða í kringum 150 þúsund
tonn af í landhelgi Namibíu en vonast
er til að veiðin geti aukist í allt að 300
þúsund tonn innan fárra ára.
Lýsingurinn var ofveiddur af alþjóð-
legum flota togara sem stundaði veiðar
undan strönd Namibíu áður en landiö
fékk sjálfstæði 1990, en þá var landhelg-
in færð út í 200 mílur og reynt að koma
böndum á veiðarnar sem náb höfbu ca.
400 þúsund tonnum á ári. Það voru
einkum Spánverjar og Rússar sem
stunduðu veiðarnar áður með rúmlega
100 togurum.
Auk lýsings, sem er 90% af botnfisk-
Demantsveiðar eru þœgilegur útvegur sem mikið er stundaður frá Luderitz í norðri allt til Saldanha í suðri en á þessum slóðum er stœrsta
demantshérað í heiminum. Á myndinni sést dœmigerður demantsbátur undan ströndinni. Einn kafari fer niður með nokkurs konar
ryksugu og möl afbotninum er dœlt um borð og hún seld í landi. Slangan í dœluna sést fljóta aftur úr bátnum. í mölinni má finna ör-
smáa iðnaðardemanta. Þessir bátar róa ekki nema stutt frá landi og ekki nema veður sé gott.
ÆGIR 1 1