Ægir - 01.01.1996, Síða 39
Ibúðir
Almennt: íbúðir fyrir 14 menn á þrem-
ur hæðum; 5 x 2ja manna og 4 x 1
manns klefar.
Undir neðra þilfari: 4 x 2ja manna
klefar.
Neðra þilfar: 1 x 2ja manna klefi, 3 x
1 manns klefar, borðsalur og
eldhús, matvælageymslur (kælir og
frystir), þvottaklefi með salerni og
baði og salernisklefi.
Þilfarshús á efra þilfari: Stakkageymsla
með salernisklefa og skipstjóraklefi
með sérsnyrtingu.
Milliþilfarsrými, lestarými
Móttaka afla: Síld eða loönu er dælt
um borð með fiskidælu á sjóskilju
og þaðan í lestar skipsins.
Lestarbúnaður: Lestar undir neðra þil-
fari eru fjórar og er hverri skipt
með langþilum í þrjú hólf. Lestar
eru einangraðar með polyurethan
og klæddar með stáli. Milliþilfars-
lest er skipt í sex hólf. Hluti undir-
lesta er búin blásturskælingu á
rækjuveiðum.
Vindubúnaður, losunarbúnaður
Tog- og snurpivindur: Fish and Ships
Gear A/S; 3 x SP 16/6170, tromlu-
mál 325 mmo x 1200 mmo x 1350
mm, víramagn 1830 m af 24 mmo
vír, togátak vindu 8.5 tonn og 72
m/mín á mibja tromlu.
Hjálparvindur: Fish and Ships Gear
A/S, HLV 2.5 hjálparvinda við
nótaveiðar, HAL 4-5 losunar- og
akkerisvinda, HT 2.5 bómulyfti-
vinda og HB2 bómuvinda. Þá eru
þrjár Rapp Hydema, ein tvískipt
TBD 680/HMB7-9592, 10 tonna
grandaravinda, og tvær GWB
680/HMB 9592, 7.5 tonna hjálp-
arvindur. Flotvörpuvinda er frá
Vélaverkstæöi J. Hinrikssonar og
útdráttarvinda er Pullmaster.
Kraftblakkar- og fiskidœlubúnaður:
Triplex 603/360/2D kraftblökk,
Triplex TRH 70 færslublökk,
Triplex NK 1500/TRH 70
kraftblakkarkrani, og tvær Rapp
U880 fiskidælur ásamt slöngu-
tromlu.
Þilfarskranar: Fassi F 6.3, 16 tm, og
Sormec T2000 M28/2S, 28 tm.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.
Siglingatœki og staðarákvörðunartœki:
Tokyo Keiki, Tokimec BR 1800-17
ratsjá, Sperry SR 120 gyróáttaviti,
Sperry PR1000 sjálfstýring, Sagem
LHS vegmælir, Shipmate RS 5310
(GPS), Shipmate 5900 (GPS),
Shipmate RS 2500 leiðariti.
Áður en myndbandabyltingin náði
um borð í íslenska skuttogara var
ýmislegt gert sér til dundurs á
frívöktum og þegar vinnan var ekki
mjög mikil.
Sögumabur Ægis rifjabi upp vist
sína um borð í austfirskum skuttogara
um 1980. Þar greip um sig eitt sumar
mikið hannyröaæbi og spreyttu
hásetar og yfirmenn sig á því ab hekla
og hnýta ýmsa nytjahluti úr
trollgarni. Geysilega vígalegir inniskór
stýrimanns sigruðu með yfirburðum í
þeirri keppni.
Sá sami stýrimaður gat verið dálítið
brellinn. Meðal háseta var hörkutól
eitt sem lét sig aldrei í neinni keppni
en reiddi ekki vitið í þverpokum. Sá
sat eitt sinn með svokallaðan Rubrikk-
kubb sem einhverjir muna kannski
eftir. Kubbófétið var með hreyfan-
legum hliðum á alla kanta og þrautin
fólst í því að velta honum í höndum
sér þar til samstæðir litir lágu á
heilum hliðum. Stýrimabur tekur
kubbinn. af háseta og segist vilja
spreyta sig á honum á togvaktinni.
Eftir röskan klukkutíma kemur hann
niður í borösal aftur heldur kampa-
gleiður meö kubbinn og hefur nú
raðað samstæbum lit á hverja hlið
fyrir sig. Hann snýr kubbinn allan í
rugl á ný fyrir framan hásetann með
Fiskileitartœki: Atlas Fischfinder 782
dýptarmælir, JMC, gerð V-144
dýptarmælir, Simrad SM 600 sónar,
Scanmar CGM 03/SRU400 afla-
mælir.
Fjarskiptatœki: Sailor T 122/R106
mibbylgjutalstöð, Sailor RT 2047
og Shipmate 8300 örbylgju-
stöðvar, Seasat Standard C. Sharp
telefax, Shipmate RS 6100
Navtex. □
frýjunarorðum um ab þetta sé óttalegt
rísl og dútl sem henti best konum og
börnum.
Ekki er að orðlengja að hásetanum
hljóp talsvert kapp í kinn enda höfðu
þeir kumpánar ibulega att kappi í
ýmsum leikjum. Háseti hverfur í koju
með kubbinn og sýnist frekar
einbeittur. Líður nú og bíöur og háseti
verður þreytulegri með hverri vakt
enda neytti hann eigi svefns á
frívöktum heldur sat með hinn
illræmda kubb í höndum sér og velti
honum og sneri án árangurs. Að
lokum var félögum hans hætt að
standa á sama þegar hann stóð líkt og
dáleiddur í miðjum verkum og
tuldraöi samhengislaust rugl fyrir
munni sér með bauga undir augum
niður á kjálka.
Stýrimaburinn hrekkjótti haföi
nefnilega plokkað alla litina af
kubbnum með vasahníf og límt þá á
réttan stað svo hann sýndist hafa
leyst þrautina en var í raun jafnlangt
frá því og hásetinn.
Þessi sami stýrimaður átti lengi
teninga sem hann einn notaði í Yatzy
og skyldum leikjum og voru með sex
punktum á tveimur hlibum. Ekki
öfluöu þeir gripir honum mikilla
vinsælda frekar en hrekkurinn með
Rubrik-kubbinn. □
1] f ‘1
Hrekkjótti stýrimaðurinn
ÆGIR 39