Ægir - 01.07.1996, Page 7
Betri
veðurfregnir
Betri veðurskeyti eru komin á síðu 488 í Textavarpi.
í desember síðastliðnum var grein í Ægi um
veðurathuganir og þær miklu framfarir sem
orðið hafa undanfarið í sjálfvirkum veðurat-
hugunum. í þeirri grein kom fram að Lands-
virkjun ætti og starfrækti átta sjálfvirkar veð-
urathugunarstöðvar uppi á hálendi íslands og
notaði upplýsingar frá þeim til að fylgjast með
vatnsforðabúskap, horfum og ástandi. Þá
sagði Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar að þessar upplýsingar færu
áfram til Veðurstofunnar en að öðm leyti væri
þeim ekki miðlað áfram og stæði ekki til að
gera það.
Það er ánægulegt að geta sagt frá því að
Landsvirkjun hefur snarlega skipt um skoðun
því nú er hægt að fletta upp á síðu 488 í texta-
varpinu í sjónvarpi allra landsmanna og sjá
glóðvolg veðurskeyti frá nokkmm stöðum á
hálendinu. í textavarpinu eru skeyti frá stöðv-
um við Búrfell, í Veiðivatnahrauni, Jökul-
heimum, Þúfuveri sunnan við Hofsjökul,
Kolku sem er á Eyvindarstaðaheiði norðan
Hofsjökuls og Sandbúðum á Sprengisandsleið.
Samkvæmt bestu heimildum Ægis er stutt
í að skeyti frá öllum sjálfvirkum stöðvum á
landinu veðri birt í textavarpinu. Það strandar
á mismunandi afstöðu ríkisstofnana sem að
málinu koma en Vita- og hafnamái vildi ekki
taka þátt í slíku samstarfi þar sem það myndi
minnka aðsókn eða eftirspurn eftir símaþjón-
ustu stofnunarinnar.D
FISKUR MÁNAÐARINS
Fiskur mánaðarins er háfur sem telst til vannýttra fisktegunda við ís-
landsstrendur. Háfurinn (Squalus acanthias) er af gaddháfaætt og getur náð
120 cm lengd en er sjaldan lengri en 80-100 cm. Háfurinn er langur og
straumlínulagaður með lítinn haus og mjög fíngerðan skráp.
Heimkynni háfsins eru beggja vegna N.-Atlantshafsins allt frá Múrm-
ansk í austri suður með
allri Evrópu og inn í
Miðjarðarhaf og Svartí
haf. Hann er við Grænland,
ísland og Bretland. Við ísland er
hann við allt land en þó mun meira
í hlýja sjónum sunnan- og suðvestanlands.
Háfurinn heldur sig við botninn þar sem er leir og er mest á
10-200 metra dýpi en hefur fundist allt niður á 950 metra dýpi. Háfurinn
er gráðugur og étur allt sem að kjafti kemur og hann ræður við en er sjálf-
ur étinn af stærri háfiskum, selum og háhyrningum.
Háfurinn á lifandi unga, 4-6 í einu, og talinn ganga með í tvö ár en lít-
ið er vitað um gotstöðvar og hegðun. Vöxtur er hægur og háfurinn virðist
geta orðið a.m.k 25-30 ára þó sumar heimildir giski á allt að 100 ár.
Heimild: íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson
STYTTRI SIGLINGATÍMA
KRAFIST /
Breytt reglugerö um stýrimannanám
Frá og með 21. maí 1996 tók gildi breyting á reglugerð nr. 174 frá
1991 um Stýrimannaskólann í Reykjavík. Eftir breytingu hljóðar fyrsti
töluliður fyrstu málsgreinar fjórðu greinar svo:
„Til þess að fá inngöngu í 1. bekk þarf umsækjandi að leggja fram
vottorð um 6 mánaða hásetatíma eftir 15 éra aldur á skipi yfir 12 rúm-
lestum. Til þess að fá inngöngu í deild þá er býr menn undir próf skip-
stjóraefna á varðskipum ríkisins, skal umsækjandi hafa lokið 3. stigs
prófi með eigi lægri en fyrstu meðaleinkunn.
Skólastjóra er þó heimilt að veita efnilegum nemendum undanþágu
frá þessu skilyrði, ef sérstaklega stendur á, svo sem langur reynslutími
sem stýrimaður á varðskipum ríkisins."
Áður hljóðaði krafan upp á 24 mánaða siglingatíma svo hér er um
verulegar tilslakanir að ræða.
Þetta þýðir í reynd að nú eiga áhugasamir piltar og stúlkur auðveldara
með að komast inn í Stýrimannaskólann en áður hafi væntanlegir nem-
endur ekki haft tök á að komast til sjós og afla sér tilskilins siglingatíma.
Þessi breyting er gerð til þess að koma til móts við breyttar aðstæður en
aðsókn að Stýrimannaskólanum undanfarin ár hefur ekki verið eins mik-
il og áður og er það mörgum áhyggjuefni.
ÆGIR 7