Ægir - 01.07.1996, Síða 49
Mál og stærðir
Mesta lengd.................................. 149.5 m
Lengd milli lóðlína.......................... 140.1 m
Breidd (mótuð)............................... 22.30 m
Dýpt að þilfari.............................. 11.10 m
Brúttótonn................................... 9.650 BT
Særými (sumarhleðsla)....................... 12.534 t
Lest 1 ...................................... 3.833 m3
Lest 2....................................... 5.242 m3
Lest 3....................................... 5.282 m3
Lest 4....................................... 2.250 m3
Samtals lestarými........................... 16.607 m3
Brennsluolíugeymar (svartolía)............. 1 -279 m3
Brennsluolíugeymar (gasolía) .................. 171 m3
Sjótankar.................................... 4.041 m3
Ferskvatnsgeymar............................... 230 m3
Langdrægni (hagkvæm keyrsla) .............. 11 000 sm
Ganghraði í reynslusiglingu................ 18.2 sm
Skipaskrárnúmer............................... 2269
Vélbúnaður
Aðalvélin er frá Cegielski Man B&W, sex strokka tvígengis
krosshausvél, með afgasblásara og eftirkælingu. Aðalvélin
brennir 380 cst 50°C svartolíu. Aðalvélin tengist beint við
skiptiskrúfubúnað. Við framenda aðalvélar er gírbúnaður og
þúsund snúninga rafall.
Tæknilegar upplýsingar
Gerð vélar................ 6L50 MC
Þvermál bullu ............ 500 mm
Slaglengd................. 1.600 mm
Afköst.................... 6.930 kw (9.422 hö)
Snúningshraði ............ 140sn/mín
Eyðslustuðull............. 172 gr/kwklst (126,5 gr/haklst)
Gírhlutföll fyrir rafal... 1:8,69 og 1:7,41
Þvermál skrúfu............ 5,2 m
Á framenda aðalvélar tengist um gír rafall frá Domel, 1.250
KVA, 1.000 KW, 3 x 380 V, 50 Hz við 1000 sn/mín.
í skipinu eru þrjár hjálparvélar, sex strokka fjórgengisvélar
með afgasblásara og eftirkælingu, frá Cegielski Sulzer 6AL20R,
615 KW(836hö) við 1.000 sn/mín, með rafala frá Domel, 630
KVA, 504 KW, 3 x 380 V, 50 hz. Einnig er ein loftkæld 1500
sn/mín neyðarvél með 116 KW rafala. Bógskrúfa er rafdrifin
og er 750 KW (1.020 hö). Til upphitunar á svartoliu og öðmm
þáttum skipsins eru tveir katlar. Aðalketillinn er afgasketill
með yfirþrýsting. Olíukyntur hjálparketill notast í höfnum.
Stýrisvél er raf-vökvaknúin og beitir stýrisblaði +30° - +30° á
minna en 28 sek á fullri ferð. Annar vélbúnaður er tvær skil-
vindur fyrir svartolíu, Alfa Laval af gerð MFPX 307TFD, af-
köst 2.0001/klst. Ein smurolíuskilvinda er frá WSK-Krakow af
gerð MPAX 207-S24. Ein gasolíuskilvinda fyrir hjálparvélar
MAPX 207-S24. Þrjár kæliþjöppur frá Sabroe, með R-22 kæli-
miðli, em fyrir íbúðakælingu, matvælakæli og frysti. Fullkom-
inn seigjubúnaður og hitarar era fyrir svartolíu. Ferskvatns-
framleiðslutæki frá Alfa Laval. Austurskilja og hægt er að
brenna úrgangsolíu sem kemur frá skiljunni í olíukatli. Skolp-
hreinsikerfi. Ræsiloftþjöppur, 95 m3/klst við 30 bara þrýsting
og vinnuloftþjappa við 7 bara þrýsting. Vélarúmsblásari með
200% afköst miðað við hámarks loftnotkun í vélarúmi. Verk-
stæði í vélarúmi með fjölbreyttan búnað. Vélarúm er með
C02 slökkvibúnað. Lestar skipsins eru útbúnar með C02 og
vatnsslökkvibúnað.
íbúðir eru á sex hæðum fyrir 14 manna áhöfn og 12 far-
þega. ibúðaklefar em rúmgóðir og flestir með sér snyrtingu
og sturtu, sex klefar samnýta snyrtingu og sturtu með öðrum
klefa. í skipinu eru 23 klefar auk sjúkraklefa. 1. hæð: Eldhús,
borðsalir, setustofur og skrifstofur. 2. hæð: 9 klefar og tvær
geymslur fyrir tau. 3. hæð: 3 klefar, sundlaug auk sjúkraklefa
og lyfjageymslu. 4. og 5. hæð: 4 klefar á hvorri hæð. 6. hæð:
3 klefar auk ráðstefnuherbergis og salernisklefa. 7. hæð: Stýr-
ishús.
Dekkbúnaður er hefðbundinn fyrir gámaflutningaskip.
Fremst á bakkadekki eru sambyggðar akkeris- og landfesti-
vindur, landfestibúnaður er með sjálfvirkum strekkibúnaði.
Til losunar og lestunar eru tveir McGregor Hágglunds raf/
vökva drifnir kranar, sem lyfta 39 tonnum í mestu lengd
ÆGIR 49