Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1998, Qupperneq 8

Ægir - 01.01.1998, Qupperneq 8
stuttum brautum í fiskiðnaði. Þetta hlýtur greinin að skoða vel. Númer eitt er að á brautun- um sé kennt eitthvað sem greinin þarf á að halda og ég held að margt fiskvinnslufólk hefði áhuga á að fara á slíkar stuttar brautir. J aukinni umrceðu um umhverfismál felast miklir möguleikar fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtœki." En almennt séð þá trúi ég því að umræðan um menntunarmál í sjávarútvegi verði mikil á næstunni vegna þess að greinin er núna komin í þá stöðu að fyrirtækin eru ekki lengur í sífelldri baráttu að lifa daginn af heldur hafa þau tíma til að hugsa til framtíðar og þá er menntun ofarlega á Iistanum," segir Guðrún. Millistigið vantar í skólakerfið Mestu þörfina segist Guðrún sjá á framhaldsskólastiginu. „Börn í grunnskólum eru að leggja grunn og eðlilega er það mikil áhersla á greinar eins og íslensku og stærð- fræði að þau fá töluverða fræðslu um íslenskan sjávarútveg í samfélagsfræði DIESELVÉLAR • TÚRBÍNUR FISKISLÓÐ 135 B, Pósthólf 1562 - 121 Reykjavík - Sími: 561 0020 - Fax: 561 0023 MITSUBISHI n/ESELVELAR AÐAL- OG HJÁLPARVÉLAR MIKIÐ ÚPVAL HAGSTÆTT VERÐ MDvélar hf. Vinsamlega leitið tilboða! VÉLBÚNAÐUR • VARAHLUTIR og líffræði. Ætlunin er að bj'ða áfram upp á kennslu með skóla- skipinu og gefa þannig börnum kost á að kynnast sjómennsku af eigin raun. Það er á framhaldsskólastigi sem mér sýnist að brýnast sé að taka til hendi og ef menn vilja leita að götum í menntun til starfa í fiskvinnslu þá finnst mér það vera þar. Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði tekur til dæmis annan hóp því hann gerir kröfur um a.m.k. 52 eininga nám úr framhaldsskóla. Við höfum síðan háskólamenntun í sjáv- arútvegsfræðum og þar er verið að mennta stjórnendur en millistigið verður dálítið eftir og það er bagalegt vegna þess að fiskvinnslustörfin eru sérhæfð og við þurfum að geta þjálfað fólk til þessara starfa í gegnum skóla- kerfi sem byggir á samvinnu fyrirtækja og skóla." Guðrún leggur áherslu á að sam- kvæmt lögum geti starfsgreinarnar sjálfar haft mikil áhrif á mótun starfs- menntunar í skólakerfinu. „Ramminn er skýr og til staðar og næsta skref er því að efla áhuga manna á að koma að þessari vinnu," segir hún. Tækifæri í umhverfisumræðunni Umræða um umhverfismál í tengslum við sjávarútveginn fer stöðugt vaxandi og Guðrún segist merkja að þau verði æ stærri þáttur í verkefnum starfs- manna sjávarútvegsráðuneytisins. „Okkur sem að þeim málum koma finnst rétt eins og í menntamálunum að greinin í heild þurfi að láta til sín taka og hún þurfi að finna sér sam- starfsvettvang um slík mál. í umhverf- ismálunum erum við íslendingar allir á sama báti. En ég er líka viss um að í mikilli og aukinni umræðu um um- hverfismál felast miklir möguleikar fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki vegna þess að þau hafa í þeim málum góðan málstað að verja," segir Guðrún Eyjólfsdóttir. 8 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.