Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 37

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Vlð erum stœrstu framleiðendur á pökkunarkerfuiti fyrir uppsjávar- fisk og eruin þessa dagana að kynna tiýja og byltingarkennda vinnslulínu sem muti auka gœði fisksins oggera alla upplýsingaöflun og skráningu þœgilegri. Þá höfum við þegar smíðað hausara sem tnun auka nýtingu hrá- efnisins um að minnsta kosti tvö pró- sent. Við erum alltafað bœta við okkur í tcekni og þekkingu og það sér hver maður að efhœgt er að auka nýtingu á fiskinutn um tvö prósent þá er nýr hausari fljótur að borga sig," segir Birgir Bjarnason, fram- kvœmdastjóri Landssmiðjunnar. Ægir sótti fyrirtœkið heitn í Garða- bœinn og hitti Birgi og Þorstein Óia Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóra. Birgir og Þorsteinn Óli segja Lands- smiðjuna lítið hafa haft sig í frammi í markaðskynningu undanfarin ár. Menn hafi einbeitt sér að því að byggja upp fyrirtækið sem bjóði nú heildarlausnir í vél- búnaði á landi og sjó, allt frá því að hráefnið kemur inn í vinnsluna og til þess er það er sent úr húsi. Nú eru þeir sannfærðir um að fyrirtækið eigi fjölmörg sóknarfæri, þau sem mest séu spennandi í dag liggi í vinnslulín- unni og hausaranum. Birgir Bjarnason, framkvcemdastjóri Landssmiðjunnar, og Þorsteinn Óli Sigurðsson, markaðs- og sölustjóri, standa hér við hina byltingarkenndu vinnslulínu sem þeir segja verða tilbúna innan fárra mánaða. af fólki í vinnslunni," segir Þorsteinn Óli og bætir við að ekki aðeins megi störfuðu alls um 350 manns hjá fyrirtækinu. Um miðjan 9. áratuginn var það selt starfsmönn- um, fyrsta fyrirtækið í eigu ríkisins sem var einkavætt. Á næstu árum voru gerðar miklar breytingar, nýir hluthaf- ar komu inn í fyrirtækið og loks keypti Sindrastál fyrirtækið 1991. Aukinn útflutningur „Þegar Sindrastál keypti fyrirtækið var í raun mótuð sú stefna sem við fylgjum enn í dag, þ.e. að fyrirtækið einbeiti sér að framleiðslu véla og tækja fyrir matvælaiðnað. Liður í því var að kaupa Eðalstál, einn stærsta framleiðanda á Landssmiðjan framleiðir vélar og tœki fyrir matvælaframleiðslu: Nýr hausari eykur nýtingu um í að minnsta tvö prósent Verðmætari afurð „Vinnslulínan er þannig upp byggð að hvert flak eða hver fiskur er fluttur á sérstakri plötu alla leið í gegnum ferl- ið. Með því að koma í veg fyrir að hrá- efnið veltist um á færibændi fáum við verðmætari afurð. Hugmyndin er síð- an að forfrysta flökin áður en þau eru skorin niður. Ástæðan fyrir frysting- unni er að gera vinnsluna meira vél- ræna. Þegar búið er að snyrta flakið kemur mannshöndin ekki frekar að vinnslunni og þannig sparast töluvert nota vinnslulínuna við bolfiskvinnslu heldur bindi menn vonir við að full- vinna megi lax í henni líka. Þar að auki megi nota hana í annarri mat- vælaframleiðslu. Landssmiðjan er gamalgróið fyrir- tækið. Það var stofnað árið 1930 og var þá í eigu ríkisins. Sem slíkt fékk það næg verkefni í almennri málm- iðnaðarsmíði í víðustu merkinu þess orðs, byggði brýr og bryggjur, reisti síldarverksmiðjur og álver og rak öfl- uga renni- og trésmíði. Þegar mest var flæðilínum og vinnslubúnaði í landinu, og þá varð í raun til það fyrirtæki sem við sjáum í Lands- smiðjunni í dag. Fyrirtækið var endurfjármagnað 1995, þá komu viðbótarhluthafar inn og í byrjun árs 1997 fluttum við svo í þetta húsnæði að Lyng- ási 1 í Garðabæ. Þá hafði Landssmiðj- an verið 67 ár á Sölvhólsgötunni í Reykjavík," segir Birgir Bjarnason og bætir við að stjórnendur og eigendur fyrirtækisins séu mjög stoltir af sögu Landssmiðjunnar og hyggist varðveita hana á einn eða annan hátt. Framtíð- in verði byggð á grunni þess sem liðið er. Hjá fyrirtækinu vinna 40 manns í dag. Um 90% af veltu þess er sala á vélum og tækjum fyrir matvælaiðnað og um 40% af veltu er útflutningur. ÆGffi 37

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.