Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 38

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 38
Bigir og Þorsteinn segja framtíðar- áform fyrirtækisins skýr. Landssmiðjan sé nú þriðji stærsti framleiðandinn á vélbúnaði fyrir matvælaiðnað en markmiðið er að auka hlut þess og verða númer tvö í röðinni. Á næstu árum sé stefnt að því að auka útflutn- inginn úr 40% af veltu í um 75%. Hámarka nýtingu og afköst „Starfsmenn Landssmiðjunnar búa yfir mikilli reynslu og í þróunardeild er unnið með þarfir viðskiptavinarins til að hámarka nýtingu og afköst. Galdurinn er að reyna að hámarka nýtingu þess hráefnis sem berst á land. í því liggja gríðarleg verðmæti og því skiptir hvert prósent í bættri nýt- ingu miklu máli fyrir vinnsluna," segir Birgir og spurningunni um hvort ís- lendingar séu samkeppnishæfir á þessu sviði svarar hann umsvifalaust játandi. íslendingar státi af einni fullkomnustu fiskverkun í heimi og í fáum löndum séu gerðar jafn miklar kröfur og hér. Því geti menn verið viss- ir um að óhætt sé að selja vélbúnað til útlanda sem búið sé að prófa hér á landi. Hann segir styrk Landssmiðj- unnar felast í fjölbreytni í vöruvali og háu tæknistigi. „Við sækjum með afurðir okkar á markaði við Norður-Atlandshaf. Við setjum kerfin niður og þar sem þess gerist þörf þjálfum við starfsfólk til þess að nota þau. Síðan sjáum við um þjónustuþáttinn, stundum í samstarfi við fyrirtæki á heimamarkaði. Við ætl- um að auka markaðssókn okkar, vinn- um eins og er eftir umboðsmannakerfi en munum að sjálfsögðu skoða það í ljósi aðstæðna hverju sinni hvort skynsamlegt verði að setja niður fasta starfsemi í útlöndum," segir Birgir Bjarnason, bjartsýnn á framtíðar- möguleika Landssmiðjunnar, bæði hér heima og erlendis. Óskum útgerð og áhöfn Ásdísar ST 37 til hamingju með breytingarnar. Við sáum um hönnun, gerð teikninga og eftirlit með verkinu. SKIPA- OG VELATÆKNI ehf RÁÐGJÖF, HÖNNUN OG EFTIRLIT Hafnargötu 60, pósthólf 38 Keflavík Sími: 421 5706, Fax: 421 4708 38 mchr

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.