Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 25

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 25
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI „Mikilvægast að vinna úr aflaheimildunum á sem arðbærastan hátt“ „Það mikilvægasta er að ná að vinna úr aflaheimildunum á sem arðbærastan hátt. Það þýðir að áfram þarf að beita hagkvæmni í rekstr- inum þannig að starf- semin skili sem mest- um arði," segir Brynj- ólfur Bjarnason, for- stjóri Granda hf. „Við höfum kynnt opinberlega að hér hjá Granda erum við með þróun- arverkefni í gangi sem snýr að laus- frystingu um borð í frystitogurum úti á sjó og frekari framhaldsvinnslu í landi. Við munum fara með frystitog- arann Örfirisey í lengingu í ágúst i sumar þar sem jafnframt verður settur í hann búnaður vegna þessa verkefnis. Með þessu erum við að stíga næsta skref í vinnslunni og til frekari verð- mætaaukningar. Allt er þetta liður í að gera aflaheimildarnar verðmeiri. En þetta verkefni verður þó ekki komið að fullu inn í reksturinn fyrr en í árs- lok eða upphaf þess næsta þannig að við notum árið til að vinna áfram að undirbúningi verkefnisins. Allt er þetta þó með þeim fyrirvara að engin veruleg röskun verði á starf- seminni, t.d. vegna vinnudeilna eða að veruleg breyting verði á afla- heimildum. Hvað erlendu verkefni okkar snertir þá höldum við áfram á sömu braut með verkefni í Chile og Mexíkó þar sem við vinnum af alefli. Okkur geng- ur ágætlega í þeim verkefnum en höf- um jafnframt augun opin fyrir frekari verkefnum," segir Bryjólfur. Aðspurður hvort hann horfi bjart- sýnn á árið segir hann svo vera. „Já, ég geri það. Ég tel að það sé alltaf að koma betur og betur í ljós að fiskveiðistjórnunarkerfið skilar árangri og það kallar fram meiri arðsemi í sjávarútveginum í heild. Þannig mun þróunin halda áfram á næstu árum, vonandi þjóðinni til heilla," segir Brynjólfur. Aðspurður um afkomutöl- ur Granda hf. fyrir síðasta ár segir hann þær ekki liggja fyrir en ákvörðun hefur verið tekin um að aðalfundur Granda verði haldinn í byrjun apríl þannig að afkomutölur verða væntan- lega birtar í marsmánuði. Brynjólfur Bjamason. ÚTGERÐARMENN ATH! Tökum að okkur uppsetningu og viðgerðir á öllum almennum veiðarfærum uiÐGE*®**' pjÓN«slft Netagerö Höfða Húsavík, sími: 464 1999 ÆGIR 25

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.