Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 20

Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 20
jðLkáMÉt •BETOp Uppsveifla hjá Tanga hf. á Vopnafirði Tangi hf. á Vopnafirði velti um 1,6 milljörðum króna á síðasta ári og hefur veltan aukist hröðum skrefum á fáum árum. Framleiðsla fyrirtækis- ins varð einnig meiri en nokkru sinni fyrr, sér í lagi var frysting mikil, eða samtals um 9700 tonn af loðnu og síld. Tangi tók á móti 73 þúsund tonnum af hráefni til vinnslu á ár- inu. Tangi hf. er nú með í byggingu stóra frystigeymslu en að undan- förnu hefur frystigeta fyrirtækisins verið verulega. Þessar framkvæmdir koma til viðbótar nýju frystihúsi sem tekið var í notkun fyrir skömmu og breytingum á fiskimjölsverk- smiðju sem stórauka afkastagetu. Snúa bökum saman á Hornafirði í takt við það samrunaferli sem einkenndi umhverfið í sjávarútvegi á síðasta ári hófst árið 1998 með sameiningu fjögurra fyrirtækja á Hornafirði við Borgey hf. Þetta eru fyrirtækin Mars ehf, Melavík ehf., Perú ehf. og Garðey ehf. Eftir þennan samruna verður Borgey hf. fyrirtæki með 6400 tonna kvóta í þorskígildum talið. Kvótinn nær jafnt til uppsjávarfisks sem og botn- fisktegunda. Sameiningin er miðuð við síðustu áramót en vinna stendur nú yfir við ársreikninga fyrir- tækjanna fjögurra og í framhaldinu verður samruninn endanlsgur milljónir eða um 1,5%. Á árinu 1995 nam aflaverðmætið á íslandsmiðum um 50 milljörðum kr. og heildaraflinn varð 1.565 þús tonn. Árið 1994 varð heildaraflinn 1.511 þús tonn og verð- mæti hans um 49,0 milljarðar króna. Þannig hefur afla- verðmæt- ið sveifl- ast mun minna en magnið og endur- speglar þetta sam- setningu aflans. Loðna og síld sem er stærsti hluti magnsins er mun verðminni fisk- ur heldur en t.d. þorskur eða rækja. Þá er ónefnt að bæði markaðsaðstæður og gengi ráða verulegu um fiskverðið. Talið í dollurum nemur verðmæti heildaraflans upp úr sjó 774 milljón- um en það nam 863 milljónum árið 1996 (771 m USD árið 1995). Því er um 10% samdrátt milli ára að ræða. Sé miðað við SDR var virði aflans um 561 milljónir árið 1997, en var 595 millj- ónir árið á undan. Samdrátturinn er þannig um 6% en mismunandi geng- isþróun dollars og SDR veldur þessum mismunandi niðurstöðum. Tekið skal fram að miðað er við meðalgengi jan/nóv bæði árin. 1 fyrra lönduðu erlend fiskiskip á ís- landi til vinnslu um 102 þúsund tonn- um á móti um 110 þúsund tonnum árið áður. Af þessum 102 þúsund tonnum er um 71 þúsund tonn loðna og eru þetta mjög svipaðar tölur og árið 1996. Þá bætist við að um 15 þús- und tonnum af síld var landað hér til bræðslu. Bolfiskur var í fyrra um 15 þúsund tonn á móti um 30 þúsund tonnum í fyrra og dróst saman um helming. Andvirði útfluttra sjávarafurða áætl- ar Fiskifélagið að verði um 95 milljarð- ar króna á árinu 1997. Það er nánast sama útflutningsverðmætið og árið áður en þá varð útflutningurinn 95,3 milljarðar. Árið 1995 nam verðmæti útflutnings sjávarafurða um 86 millj- örðum króna. Verðmæti útflutningsins er áætlað að nemi um 1,336 milljón- um dollara árið 1997 en var um 1,434 m. dollarar árið áður. Sé miðað við SDR er útflutnings- verðmætið nú um 970 milljónir SDR en var 987 millj- ónir árið á undan. Hér er um áhrif mismunandi gengisþróunar að ræða. Hagstætt ár að baki Það ár sem nú leið var íslenskum sjáv- arútvegi um margt hagstætt. í ljósi sögunnar verður þess vafalaust minnst fyrir þær miklu sameiningar sem urðu hjá fyrirtækjum í greininni. Framund- an eru mörg aðkallandi vandamál sem sjávarútvegurinn þarf að glíma við og nú strax í byrjun árs þarf að taka mikl- ar ákvarðanir í kjaramálum sjómanna. Hvort heldur er í tengslum við þær ákvarðanir eða til að mæta stigvaxandi kröfum almennings í landinu þarf að komast að niðurstöðu um hvernig skuli fara með framsal á kvótum til fiskveiða. Þá er einnig verkefni sjávar- útvegsins að koma rækilega til skila hjá almenningi bæði hér á landi og er- lendis að við lifum á gæðum hafsins og það er okkur lífsspursmál að við getum gert það áfram. Því er það okkar að ganga þannig um auðlindir okkar að komandi kynslóðir geti haldið áfram að búa í þessu landi um ókomna tíð. Við verðum að nota þetta ár, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst sem „Ári hafsins" til að koma þessum boðskap okkar á framfæri sem víðast. Ég óska landsmönnum gæfu á nýbyrjuðu ári og vona að það verði farsælt bæði til lands og sjávar. „Komast þarfað niðurstöðu um hvernig skuli fara með framsal á kvótum til fiskveiða." 20 M3m

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.