Ægir - 01.01.1998, Blaðsíða 40
Ferill Ásdísar
Báturinn er númer 5 frá Vélsmiðjunni
Stál í Seyðisfirði. Hann var smíðaður
árið 1975 og afhentur í júlí sama ár
Jóni Einarssyni á Raufarhöfn. Þá hét
báturinn Hildur Stefánsdóttir ÞH 204.
í janúar 1979 eignast Jón Tryggvason
á Dalvík bátinn og gerði út undir
nafninu Tryggvi Jónsson EA 26. Þor-
leifur Guðmundsson í Þorlákshöfn
gerði bátinn út frá Þorlákshöfn frá
október 1982 og hét hann þá Kristín
ÁR 101. Bassi ehf. núverandi eigandi,
eignaðist bátinn í október 1989 og
gerir hann út á rækju.
Nokkrum sinnum hefur verið skipt
um vél í bátnum. Hann kom með 200
hestafla Dorman vél sem skipt var út
fyrir 280 hestafla Catepillar í febrúar
1980. Nú er Ásdís búin 365 hestafla
Caterpillar aðalvél sem sett var í skipið
í júlí 1996.
Skipið nú
- almenn lýsing
Báturinn er endurbyggður úr stáli
samkvæmt regium og undir eftirliti
Siglingastofnunar íslands hjá Ósey hf.
í Hafnarfirði og var afhentur í desem-
ber 1997. Báturinn er sérhæft skip til
veiða með rækjuvörpu og dragnót.
Hann hefur eitt þilfar stafna á milli
með fjögur vatnsþétt þverskipsþil und-
ir þilfari. Báturinn er frambyggður
með stýrishús á hvalbak og hefur þil-
farsskýli bakborðsmegin sem tengist
vélareisn rétt fyrir aftan mitt skip, en
bakkaþilfari að framan. Hallanlegur
toggálgi er á skut bátsins.
Rými undir þilfari
Undir þilfari er bátinum skipt með
fjórum vatnsþéttum rýmum taiin frá
stefni: stafnhylki fyrir sjó, botntankar
fyrir ferskvatn, ofan á botntönkum er
þurrrými fyrir ýmsan búnað, þá er
lest, vélarúm er aftan við lestina og í
skut eru tankar fyrir eldsneyti.
40 MCm