Ægir - 01.01.1998, Síða 15
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
■Myndir
-Stærðir
-Útgerð
-Ferill
-Vélar
-Kvóti
Fiskifélag íslands:
Gefur út skipaskrá með
myndum á geisladiski
TJiskifélag íslands gafnú í desent-
Jg ber út geisladisk með öflngri
skipaskrá þar sem er að finna upplýs-
ingar um öll skip í íslenska skipa-
stólnum og eru yfir 500 litmyndir af
skiputn og bátuin á diskinum. Skipa-
skrá hefur aldrei verið aðgengileg með
þessum hcetti hér á landi.
Júlíus Einarsson, starfsmaður tölvu-
deildar Fiskifélags íslands, bar hitann
og þungann af vinnslu disksins og seg-
ir hann skrána mjög aðgengilega og
skemmtilega í notkun fyrir þá sem
eiga eða hafa aðgang að PC-tölvu með
geisladrifi.
„Leit í skránni og uppfletting er af-
skaplega þægileg og í raun er á diskin-
um að finna mun fyllri upplýsingar en
i Sjómannaalmanakinu. Þarna er t.d.
að finna afskráð skip, upplýsingar eru
líka um alla smábáta og kvótastöðu
þeirra. í heildina eru á diskinum upp-
lýsingar um 1680 skip þannig að þetta
er mikið efni," segir Júlíus.
Geisladiskinn er hægt að panta hjá
Fiskifélagi íslands og kostar hann
20.000 krónur. „Diskurinn hefur það
umfram skrá inni á Internetinu að úti
á sjó komast menn ekki nema sjaldan
í nettengingu en með diskinum geta
þeir flett upp í skránni þegar þeir vilja.
Diskurinn er á þann hátt mjög kær-
kominn fyrir skipaflotann," segir Júlí-
us.
REVTINGUR
Gjörbreyttur Börkur
NK kominn heim
Á dögunum kom nótaskipið
Börkur NK til heimahafnar á Nes-
kaupstað eftir hálfs árs dvöl í Pól-
landi þar sem skipinu var gjör-
breytt. Það var lengt um 14 metra,
lestum breytt, ný brú sett og margt
fleira. Ibúum á Neskaupstað og
öðrum sem voru vanir gamla góða
Berki þóttu skipið eiginlega
óþekkjanlegt eftir breytingarnar en
jafnframt stórglæsilegt. Burðargeta
er nú yfir 1700 lestir og með þeim
búnaði sem er í skipinu má fullyrða
að Börkur sé orðið eitt af öflugustu
nótaskipum flotans.
Fjallað verður ítarlega um Börk
NK í febrúarblaði Ægis.
Ný vinnslulína
í Sléttbak
Hjá Slippstöðinni á Akureyri er
nú unnið að breytingum á vinnslu-
dekki frystitogarans Sléttbaks EA.
Öll tæki voru tekin af vinnsludekki
og ný vinnslína sett um borð.
Baldvin hæstur
hjá Samherja
Baldvin Þorsteinsson EA varð
aflahæsta skip Samherja í fyrra.
Aflinn varð 7700 tonn af bolfiski og
aflaverðmæti nam 680 milljónum
króna. Þrátt fyrir minni afla en á
fyrra ári jókst verðmæti afla
togarans.
mm i5