Ægir - 01.01.1998, Side 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
árum hefur meðalþorskafli íslendinga
verið um 280 þúsund tonn á ári. Ýsan
hefur verið á góðu róli þessi ár og hef-
ur aflinn sveiflast um 50 þúsund tonn-
in en í fyrra varð nokkur samdráttur
miðað við árin næstu á undan og
drógst ýsuaflinn saman um 12 þúsund
tonn eða 20% frá síðasta ári. Ufsinn
hefur aftur á móti dregist veruiega
saman og eru ekki nægjanlega góðar
skýringar á þeim samdrætti. Hafrann-
sóknastofnunin vanmat stofninn og
breytti ráðgjöf sinni verulega á árinu
1996, en þrátt fyrir það hefur ekki tek-
ist að ná þeim kvótum sem leyfðir
hafa verið. Ufsaaflinn árið 1997 er
áætlaður um 36 þúsund tonn en var
sem næst 100 þúsund tonnum þegar
hann var mestur á þessu tímabili.
Samdrátturinn nemur um 64%. Karfa-
aflinn hefur einnig dregist saman en
er þó á þokkalegu róli. Erfitt hefur þó
reynst að veiða karfann og má ætla að
meiri sóknarþungi sé notaður til að ná
þeim afla heldur en áður. Áætlaður afli
fyrir árið 1997 er um 70 þúsund tonn
sem er um 2 þúsund tonnum meiri
afli en á árinu á undan en karfaaflinn
hefur verið um 90 til 96 þúsund tonn
á því tímabili sem taflan sýnir. Þannig
að sé litið til þess hefur karfaaflinn
dregist saman um fjórðung.
Veiðar á Reykjaneshrygg
hafa brugðist
Þá ber að geta veiða á úthafskarfa á
Reykjaneshrygg en veiðar þar hafa ver-
ið mjög mismunandi milli ára. Eftir
stöðuga aukningu og aukna sókn til
ársins 1994 varð verulegur samdráttur
á árinu 1995, en árið 1996 varð metár
með afla um 47 þúsund tonn. Því
urðu miklar væntingar á árinu 1997
og var reiknað með fjölda skipa á veið-
um en þrátt fyrir það var aflinn ekki
nema um 34 þúsund tonn. Ljóst er að
veiðar á þessum miðum eru háðar
mikilli óvissu og verða skip að vera
mjög vel útbúin til úthafsveiða til að
Aflatölur á íslandsmiðum
Heiti fisktegundar 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
Þorskur 376 354 334 307 267 251 178 169 181 200
Ýsa 53 62 66 54 46 47 58 60 56 44
Ufsi 74 80 95 99 78 70 63 47 39 36
Karfi 94 92 91 96 94 96 95 89 68 70
Úthafskarfi 0 1 4 8 14 20 47 29 47 34
Steinbítur 15 14 14 18 16 13 13 13 15 12
Grálúða 49 58 37 35 32 34 28 27 22 18
Skarkoli 14 1 1 1 1 1 1 10 13 12 1 1 1 1 1 1
Annar botnf. 23 20 22 27 28 30 27 34 33 44
Botnfiskur alls 698 693 674 654 585 574 521 479 472 469
Síld 93 97 90 79 123 1 17 130 1 10 100 72
Íslandssíld 0 0 0 0 0 0 21 174 165 219
Loðna 909 650 692 256 797 940 748 716 1,179 1,321
Uppsjávarfiskur alls 1,002 747 782 335 920 1,057 899 1,000 1,445 1,612
Humar 2,2 1,9 1,7 2,2 2,2 2,4 2,2 1,0 1,6 1,2
Rækja 29,7 26,8 29,8 38,0 46,9 53,0 72,8 76,0 68,5 72,1
Hörpudiskur 10,1 10,8 12,4 10,3 12,4 1 1,5 8,4 8,4 9,0 10,3
Annar skelfiskur 7,3 5,7
Skel og krabbar 42,0 39,5 43,9 50,5 61,5 66,9 83,4 85,4 86,4 89,3
Annað 10,4 9,9 2,5 4,6 2,3 0,9 7,6 0,56 0,7 0,7
Heíldaraflí 1,752 1,489 1,502 1,044 1,569 1,699 1,511 1,565 2,004 2,171
Heimild: Fiskifélag íslands.
Tölurnar eru endanlegar fyrir árin 1988 til 1996 en áætlun fyrir árið 1997.
Allar tölur eru í þúsundum tonna miðað við óslægðan fisk.
ÆGDR 17