Ægir - 01.01.1998, Síða 24
Ægir spyr stjórnendur nokkurra sjávarútvegsfyrirtœkja:
Hver verða mikilvægustu
verkefnin á nýju ári?
s
/upphafi hvers árs strengja menngjaman heit, setja sér markmið oggera
áœtlanir um verk sín á nýju ári. Jafnt er þessu farið hvort sem er í
fyrirtœkjarekstri eða einkalífinu en þótt sett séu markmið þá geta oft komið
upp ófyrirséðir hlutir sem fljótir eru að kollvarpa öllum áœtlunum á
örskotsstundu. Sjávarútvegurinn er sú atvinnugrein sem þetta á ekki hvað síst
við, aflinn getur brostið af óútskýranlegum ástœðum, skip bilað, markaðir
brugðist og svo framvegis. En setti betur fer virðist sú almenna staða uppi í
sjávarútveginum hér á landi í dag að bjartsýni rýkir og í flestum greinum
gengur reksturinn vel. Ægir leitaði til jtriggja forvígismanna
sjávarútvegsfyrirtœkja ogbaðjtá að lýsa mikilvœgustu verkefnum fyrirtœkja
sinna á þessu nýbyrjaða ári.
„Stærsta verkefnið að
leysa deiluna
við sjómenn“
„Stærsta verkefnið
i sjávarútveginum, ef
ég horfi til skamms
tíma, er að leysa
þessa deilu sem núna
er uppi við sjómenn.
Ef það verkefni geng-
ur illa þá verða af-
leiðingarnar misjafn-
ar milli fyrirtækja en
mest áhrif hefur
þetta á þau fyrirtæki sem byggja á
veiðum og vinnslu uppsjávarfisks.
Stöðvun í febrúarmánuði verður mjög
áhrifarík fyrir þau en síður fyrir þá
sem eru í bolfiskinum," segir Eiríkur
Tómasson, framkvæmdastjóri hjá
Þorbirninum hf.
„Horft til lengri tíma þá hlýtur að
vera verkefni númer eitt að halda vel á
spöðum í rekstrinum og ná að skila
hagnaði. Við sameinuðum Þorbjörn
hf. og Bakka hf. í Bolungarvík í fyrra
og erum núna að byrja okkar fyrsta
heila rekstrarár eftir þær breytingar.
Við erum því enn í endurskipulagn-
ingu eftir þá sameiningu enda ef sam-
eining af þessu tagi meira mál en svo
að því ljúki á örfáum mánuðum. Við
erum búnir að skipuleggja vel útgerð-
arþátt fyrirtækisins en erum að vinna í
endurskipulagningu á landvinnslunni.
Við höfum rækjuvinnslu í Hnífsdal og
Bolungarvík og bolfiskfrystihús í Bol-
ungarvík. Við gerum út skip frá Bol-
ungarvík til hráefnisöflunar fyrir þess-
ar vinnslur en hér í Grindavík höfum
við útgerð frystiskipa, saltfiskvinnslu
og héðan er fyrirtækinu stjórnað. Ég
tel að á þessu ári sjáum við reynsluna
af sameiningunni í hnotskurn en í
heild er ég bjartsýnn á árið enda hefur
afurðaverð verið hækkandi bæði á
rækju og bolfiski. Haustmánuðirnir
voru mjög góðir og ef við horfum til
birgða í rækju og sjófrystum afurðum
þá höfum við ekki séð birgðastöðuna
betri. Eftirspurnin á mörkðum er
greinilega mikil og miðað við útlitið
núna þá getur jafnvel orðið enn meiri
hækkun á rækjumörkuðum. Þessu til
viðbótar hefur hækkun á ECU haft
áhrif til góðs á salfiskafurðir þannig að
útlitið er gott," segir Eiríkur.
„Munum einbeita okkur
að því að fínslípa
fyrirtækið eftir
sameininguna“
segir Olafur Marteinsson hjá Þormóði
ramma - Sœbergi hf.
„Þórmóður rammi - Sæberg hf. gekk
í gegnum miklar breytingar í fyrra en
þá var í upphafi árs sameinaður rekstur
Þormóðs ramma hf. á Siglufirði og
Sæbergs hf. í Ólafsfirði og síðar á árinu
sameinaðist Magnús Gamalíelsson hf. í
Ólafsfirði okkur. Fyrirtækið stækkaði
þannig um meira en helming með
sameiningunum og ég tel að helsta
verkefni okkar á árinu 1998 verði að
ljúka því verki sem við hófum í fyrra,
slípa fyrirtækið þannig að reksturinn
skili sem allra bestum árangri," segir
Ólafur Marteinsson hjá Þormóði
ramma - Sæbergi hf.
Ólafur segir sameininguna hafa
gengið mjög vel og grunnurinn að því
hafi kannski ekki hvað síst verið sá að
saman voru að renna þrjú sterk fyrir-
tæki.
„Allt voru þetta sterk og vel sett
fyrirtæki og ekkert í umhverfinu sem
neyddi menn til sameiningarinnar. í
hana var ráðist til að ná enn betri
árangri en áður og okkur sýnist það
ganga eftir. Við horfum ekki fram á
neinar stórar breytingar á þessu ári og
ekki fyrirsjáanlegar sérstakar fjár-
festingar heldur munum við einbeita
okkur að því að reka smiðshöggið á
mótun fyrirtækisins," segir Ólafur.
Eiríkur Tótnas-
24 M3m