Ægir - 01.01.1998, Qupperneq 36
Vaxandi spurn eftir iðnaðarhúsum frá Límtré hf:
„Stuttur bygging-
artími mikiívægur“
- segir Sigurður Guðjónsson, tœknifrœðingur
Aallra nœstn vikum verður tekið í
notkun stór birgðageymsla SÍF
við Hafnarfjarðarhöfn. Húsið er reist
úr límtré og einingum frá Límtré hf.
og segir Sigurður Guðjónsson, tœkni-
frœðingur hjá Límtré hf. að spurn
eftir fljótbyggðu oggóðu iðnaðarhús-
nceði, jafnt fyrir fiskvinnslu sem aðra
framleiðslu, fari vaxatidi um þessar
tnundir. í matvcelaframleiðsluntii
horfi menn mjög til þess að uppfylla
allar heilbrigðiskröfur en fá utn leið
hagkvcem, vönduð og fljótbyggð liús.
Límtré hf. rekur tvær verksmiðjur í
uppsveitum Árnessýslu, annars vegar
límtrésverksmiðju á Flúðum sem fram-
leiðir burðarvirki og fleira úr límtré og
hins vegar einingaverksmiðju í
Reykholti sem framleiðir Yleiningar,
en það eru léttar byggingaeiningar.
Sölu- og tæknideild er svo staðsett í
Reykjavík þar sem veitt er margs konar
þjónusta við undirbúning fram-
kvæmda og síðan allt til verkloka.
„Við höfum fundið fyrir kröfum frá
atvinnulífinu um að bjóða upp á
heildarlausnir og okkar aðal markaður
er húsbyggingar fyrir atvinnulífið, allt
frá verslunarhúsum til verksmiðju-
húsa. í einingunum er síðan mikil
spurn eftir frysti- og kæliklefum og
það lætur raunar nærri að öll fisk-
vinnslufyrirtæki í landinu leiti til okk-
ar. Sem dæmi um uppganginn á síð-
ustu tveimur árum þá hafa Þormóður-
rammi-Sæberg hf. á Siglufirði og Tangi
hf. á Vopnafirði tekið tvo frystiklefa
hvort fyrirtæki til að fylgja eftir sinni
36 ÆG,IR --------------------------
uppbyggingu. Stór frystiklefi er í bygg-
ingu fyrir Tanga hf. og nýverið var
tekin í notkun ný mótttaka fyrir
rækjuvinnslu Skagstrendings hf. á
Skagaströnd ásamt endurbyggingu á
frystiklefum. Þannig finnum við
greinilega fyrir þeirri sveiflu sem er í
fiskvinnslunni," segir Sigurður.
Skila fyrr arði
Sigurður segir kosti Yleininganna í
matvælaiðnaðinum ótvíræða enda
þurfi oft að hafa mismunandi hitastig
eftir rýmum í húsunum.
„í atvinnulífinu er líka krafa um
mjög stuttan afhendingartíma og við
höfum lagt mikið á okkur til að mæta
þeim kröfum. Það er líka skiljanlegt að
fyrirtæki vilji koma húsunum sem
fyrst í gagnið því með því sparast mik-
ill fjármagnskostnaður og húsin fara
að skila fyrr arði til eigenda sinna,"
segir Sigurður.
Ný birgða- og kceligeymsla fyrir SÍF í
Hafnarfirði verður tekin í notkun innan
tíðar. Burðarx’irki er úr límtré og Ylein-
ingar í klceðningum, hvort tveggja fram-
leiðsla Límtrés hf.
íslensk iðnaðarhús
Tandur hf. í Reykjavík hefur nýlokið
þessari byggingu setn er með burðarvirki
og Yleiningum frá Límtré hf.
Nýtt verkstniðjuhúsnceði Plastos hf. í
Reykjavík.