Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 26

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 26
3a*/««í ipasmídaiðnaðurinn Fyrirtækið Þorgeir ogEllert hf. áAkranesi hefur náð góðri fótfestu eftir endurreisn árið 1994: Reynslan úr skipaiðnaðinum nýtist okkur vel í verkefnum fyrir stóriðjufyrirtækin - segir Þorgeir Jósefsson, framkvœmdastjóri Þorgeirs ogEllerts hf s Arið 1994 varð Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi gjaldþrota en þá hafði þetta gróna fjölskyldufyrirtœki í skipasntíðaiðnaði starfað óslitið frá stofnun árið 1928. Bœjarstjórn Akra- ttesbœjar hafði áhyggjur afstöðu þessarar greinar í baenum í fram- haldi af gjaldþrotinu og varð úr að Þorgeir Jósefsson, afabarn Þorgeirs Jósefssonar, stofnanda Þorgeirs og Ellerts hf., var fenginn til að hafa frumkvœði að endurreisn fyrirtœkis- ins. Sú tilraun gekk upp og komu að málum nýir eignaraðilar og sniátt og smátt hefur fyrirtœkið verið að byggj- ast ujip eftir endurreisnina og keppir nú jafnt í verkefnum seiti snúa að skipaiðnaðinum, setn og á öðrutn sviðum járniðnaðar. Þar er ekki hvað síst átt við stóriðjurnar á Grundar- tanga, þ.e. Járnblendiverksmiðjuna og álver Norðuráls. Þorgeir Jósefsson, frainkvœtndastjóri Þorgeirs og Ellerts hf., segir mikla samkeppni utn verk- efnin fyrir stóriðjuna en íþeitn slag a'tli fyrirtœkið að ná langt, enda standi það vel að vígi vegna nálœgð- ar. „Þó svo að hér hafi verið breytt um kennitölu eftir endurreisnina og orð- inu Skipasmíðastöð skeytt framan við Þorgeir og Ellert hf., þá er hér á ferð- inni sama fyrirtæki í grunninn. Við 26 ÆGIR ------------------------- Þorgeir Jósefsson, framkvœmdastjóri Þor- geirs og Ellerts hf., við hiið búnaðar sem á að fara í nýja loðnuþurrkunarverksmiðju í Sandgerði. tókum við sama mannskap, tækjum og húsakosti og byggjum á þeim grunni sem lagður hefur verið í starf- semina frá 1928," segir Þorgeir en nafnið Skipasmíðastöð Þorgeirs og EU- erts var ekki notað lengi því nýverið fékk fyrirtækið leyfi til að breyta nafn- inu á nýjan leik í Þorgeir og Ellert hf. Og önnur viðamikil breyting varð einnig á fyrirtækinu fyrir skömmu þegar stofnað var fyrirtækið Skaginn hf. sem annast hönnun og framleiðslu á fiskvinnslukerfum úr ryðfríu stáli. Þessum tveimur fyrirtækjum er stýrt af einni yfirstjórn en uppstokkunin hef- ur þegar sýnt að meiri skilvirkni fæst í daglegan rekstur og markvissar er hægt að sækja fram í samkeppninni í smíði fiskvinnslubúnaðar. Stór eigandi í Þorgeiri og Ellert hf. í dag er Ingólfur Árnason og fyrirtæki tengd honum. Ingólfur er þekktur í fiskvinnslunni á íslandi en hann hefur á síðustu árum hannað margt af því nýtískulegasta sem er að finna í ís- lenskum fiskvinnslum. Hafa tæki hans verið framleidd í samstarfi Þorgeirs og Ellerts hf. og Marels hf. Skaginn hf. haslar sér völl Skaginn hf. er nokkurs konar dóttur- fyrirtæki Þorgeirs og Ellerts hf. og var stofnað í kringum þá deild Þ&E sem hafði með höndum smíði á ryðfríum búnaði. Ingólfur Árnason starfar við þetta fyrirtæki að hönnun á búnaði sem þar er framleiddur. Þorgeir segir að stofnun Skagans hf. hafi verið gott skref og mikils sé vænst af þessu unga fyrirtæki. „Við ætlum okkur að taka af fullum þunga þátt í hönnun og framleiðslu á hátæknibúnaði fyrir fiskvinnslur, jafnt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.