Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 27
v^kipasniíðaiðnaðurinii
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Smíðað fyrir stóriðjuna
Hið stóra hús Þ&E hf. sem á árum áður var vettvangur nýsmíðaverkefha gegnir
mikilvœgu hlutverki þrátt fyrir að engin sé nýsmíðin. Húsið hentar vel fyrir smíði á
stœrri hlutum sem fara eiga til stóriðjufyrirtœkjanna á Grundartanga. Þjónusta við
stóriðjuna er eitt af mikilvœgustu verkefhum Þorgeirs og Ellerts hf.
landvinnslu sem og vinnsluskipin. Á
undanförnum árum höfum við átt
gott samstarf á þessu sviði við Marel
hf. og viljum halda því áfram ásamt
því að sækja einnig fram sjálfir með
okkar eigin hönnun og eigin búnað í
samkeppni við aðra.
Við teljum okkur vera í fremstu röð
í framleiðslu vinnslukerfa hvort sem
um er að ræða fyrir landvinnslu eða
sjóvinnslu," segir Þorgeir en nýverið
afhenti Skaginn hf. nýja flæðilínu til
Granda hf. ásamt nýju byltingar-
kenndu karalosunarkerfi. Einnig var
nýverið afhent laxakerfi til fyrirtækis í
Noregi í samstarfi við Marel hf.
Meðal annarra verkefna Skagans hf.
má nefna nýjar pökkunarstöðvar fyrir
uppsjávarfisk í fiskiðjuver Síldar-
vinnslunnar hf. og þessa dagana er
Skaginn hf. að ljúka smíði á búnaði
fyrir loðnuþurrkun Haraldar Böðvars-
sonar hf. í Sandgerði
Stigvaxandi velta
Fyrsta heila rekstrarár Þorgeirs og Ell-
erts hf. eftir endurreisnina var 1995 og
skilaði fyrirtækið þá hagnaði af 273
milljóna króna veltu. í fyrra var veltan
komin í 575 milljónir króna og lítils
háttar hagnaður það ár en árin 1995
Pólskur verkamaður hjá Þ&E bregður á
leik í smiðjunni.
og 1996 var hagnaður um 3% af veltu.
Meðal þess sem breyttist eftir end-
urreisnina árið 1995 var að stofnuð
voru sérstök fyrirtæki um trésmíði og
rafvirkjun og kaupir Þ&E þjónustu af
þeim; annars sækja þessi fyrirtæki sér
önnur verkefni úti í bæ en eru staðsett
í húsum Þorgeirs og Ellerts hf.
„Með stofnun þessara fyrirtækja og
stofnun Skagans hf. um ryðfría hlut-
ann þá stendur Þorgeir og Ellert hf.
eftir sem sérhæft og öflugt járnsmíða-
fyrirtæki. Því er ætlað að sinna verk-
efnum í skipaiðnaði, jafnt viðgerðum
og síðan vonandi nýsmíði, en því má
ekki gleyma að áherslur okkar hafa
breyst með tilkomu verksmiðjanna á
Grundartanga. Við ætlum að sjálf-
sögðu að keppa um verkefni í skipa-
iðnaðinum en á sama tíma fylgjum
við eftir þeim tækifærum sem bjóðast
á Grundartanga. Okkur er ljóst að þeg-
ar verksmiðjurnar tvær verða komnar í
full afköst þá kalla þær á mikið við-
hald og þar ætlum við okkur stóran
hlut. Nú þegar erum við með starfs-
menn á hverjum degi á Grundartanga
og verður vonandi svo áfram," segir
Þorgeir.
Húsakosturinn nýtist fyrir
stóriðjuverkefnin
Reynslan sem skapast í skipaiðnaðin-
um er dýrmæt þegar kemur til annarra
verkefna í járniðnaði og það undir-
strikar Þorgeir að sé fyrirtæki hans
mikils virði. Bæði búi það yfir hæfum
járniðnaðarmönnum og einnig rúm-
góðu húsnæði sem á árum áður var
notað til nýbyggingar skipa en býður
að sama skapi upp á góða aðstöðu til
að smíða stór og mikil járnstykki fyrir
stóriðjufyrirtækin. „Húsakosturinn
nýtist vel þótt við séum ekki að byggja
skip," segir Þorgeir.
Viðgerðarverkefni eru fyrst og
fremst áberandi í skipaiðnaðinum og
til að mynda hafa Skaginn hf. og Þ&E
MCm 27
Jóhann Ólafur Halldórsson