Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 55
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Sorppressugámur um borð í togaranum
Venusi hefur reynst vel og markvert er að
ekki þarf að losa hann nema í þriðju
hverri landlegu.
Sorphirðan skiptir
máli úti á sjó
T Tið settum sorppressugám í togar-
V ann Venus HF, sem Hvalur hf.
gerir út, fyrir tveimur árum. ReynsJa
útgerðarinnar og áhafnar er sií að
gámurinn Jiafi ieyst úr miklu vanda-
máli oggert aJla sorphirðu um borð
mjög einfaida og þœgilega," segir
Heiðar Sigurðsson hjá fyrirtcekinu
Sorptœkni í Reykjavík, sem er um-
boðsaðili fyrir sorphirðubúnað frá
finnska fyrirtœkinu Europress.
Heiðar segir að Hvalur hf. hafi verið
leiðandi í sorphirðumálum úti á sjó og
samkvæmt reynslu þeirra hjá
togaranum Venusi hafi aðeins þurft að
losa gáminn í þriðju hverri landlegu.
Gáminum er komið fyrir á togdekki og
sérsmíðar finnski framleiðandinn
gáma í hverju og einu tilviki og hagar
lagi þeirra samkvæmt því rými sem
valið er á dekkinu. Sömuleiðis ræður
kaupandi lit á gámnum.
„Þetta finnska fyrirtæki er leiðandi í
tækni við sorpmál og við höfum góða
reynslu af búnaðinum," segir Heiðar
og upplýsir að aðeins þarf að leggja
fram teikningar af viðkomandi skipi
og síðan sér finnska fyrirtækið um út-
færsluna. Aðspurður um kostnaðinn
þá segir hann stærð gámanna ráða því
en miðað við hversu mikið vandamál
búnaðurinn leysi þá þyki viðskiptavin-
um lausnin ekki kostnaðarsöm.
Gámurinn um borð í Venusi er 9
rúmmetrar að stærð.
„Við ákváðum að taka okkur góðan
tíma í að gera tilraunina um borð í
Venusi og í dag getum við óhikað sagt
að þetta sé lausn sem fullkomlega skil-
ar sér. Það hafa margir spurst fyrir hjá
okkur en núna förum við á fulla ferð
við markaðssetningu og sölu á
pressugámunum. I dag eru sjómenn
hættir að henda rusli í sjóinn en þeir
eru heldur ekki hrifnir af því ef mikil
vinna er í landlegum við að koma
sorpinu í land. Gámarnir eru á þann
hátt bráðeinföld lausn og auðvelt að
losa þá. Mikilsverðast er þó að úti á sjó
er afar einfalt að losa sig við ruslið og
þannig er þetta ekki að hlaðast upp út
um allt skip. Við megum heldur ekki
gleyma því að bætt sorphirða er liður í
auknum gæðum hráefnismeðhöndl-
unar úti á sjó. Það er atriði sem allir
eru að keppa að," segir Heiðar
Sigurðsson hjá Sorptækni.
ÆGIR 55