Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 31

Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 31
v^kipasmíðaiðnaðurinn SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Hagnaður Stálsmiðjunnar hf. í milljónum króna 70 60 50 40 30 20 10 0 Fyrstu sex mánuðir 1998 Samstarfsverkefni geta skilað árangri Þegar sem mest var talað um mögu- leikana á smíði hafrannsóknaskips hér heima þá var bent á samstarfsmögu- leika skipasmíðastöðvanna sem væn- lega leið. Ágúst er fylgjandi samvinnu- leiðinni og segir í henni fólgna leið til árangurs þegar um stærri verkefni er að ræða. „Já, ég tel svo vera í stærri verkefn- um. Það hefur verið rætt um þennan möguleika meðal forsvarsmanna fyrir- tækja í skipaiðnaðnum og ég vona að við munum sjá slíkt gerast þegar um stærri verkefni verður að ræða. Þar á ég við verkefni fyrir innlenda aðila, enda ólíklegt að erlendir aðilar snúi sér hingað með skipasmíðaverkefni en samt sem áður er vonandi að sú staða komi einhvern tímann upp," segir Ágúst. Mikil umsvif fyrir stóriðjuna Sem dæmi um umsvif Stálsmiðjunnar fyrir stóriðjuna má nefna að á síðasta ári sköpuðu þau verkefni um 40% af veitu fyrirtækisins. Stálsmiðjan hf. stofnaði, ásamt vélsmiðjunni Norma í Garðabæ, fyrirtækið Stálverktak hf. og var þetta gert til að fyrirtækin væru hæfari til að takast á við stærri verk- efni. Stálverktak býður í verk og deilir verkþáttunum út til Stálsmiðjunnar og Norma, eftir því sem við á. Stálsmiðján fjárfesti á árinu í búnaði til að háþrýstihreinsa skip. Hér er nótaveiði- skip í hreinsun. Ágúst segir að Stálsmiðjan hafi einnig staðið frammi fyrir nauðsyn á stofnun deildar til að smíða úr ryðfríu stáli en í stað þess var tekinn sá kostur að kaupa 46% hlut í Landssmiðjunni í Garðabæ og fá þannig gott samstarfs- fyrirtæki fyrir þennan verkþátt. „Þetta gerir okkur líka kleift að bjóða í samstarfi við Landssmiðjuna í heiidariausnir fyrir fiskvinnslur og vinnsluskip og mér sýnist reynslan fram af þessu vera góð." Danir leggja mikið upp úr menntuninni Danir eru mikil iðnaðarþjóð og oft er bent á þá sem dæmi um fólk er hefur byggt upp öflugt þjóðfélag, þrátt fyrir að hafa ekki fallvötn eða auðlindir í sjó til að ganga á og nýta. Þar í landi er litið á mannvitið sem virkjanlega auðlind og það kann að vera svarið við mörgum spurningum um hagsæld Dana. Skipaiðnaður á sér langa sögu í Danmörku og til að mynda hafa risavaxin olíuskip verið byggð af dönskum fyrirtækjum. Þetta var meðal þess sem Danir kynntu í bás sínum á heimssýningunni í Lissabon í sumar og vöktu þar með athygli á þekkingu sinni í skipabyggingum. A sínum tíma átti danskur skipa- smíðaiðnaður í miklum þrengingum. Svar við því ástandi var að efla menntun málmiðnaðarmanna og skipasmiða. Árangurinn af þessu er talinn hafa komið fram á síðari árum þar sem dönsk fyrirtæki í skipasmíðum hafi skapað sér ný verkefni og rétt úr kútnum. Til dæmis hafi smíði skemmtiskipa ýmis konar orðið snar þáttur í dönskum skipasmíðum. Bent er á að fjöl- breytnin sé einmitt það atriði sem sé mikilsverðast í atvinnulífi og það gildi ekki hvað síst í skipasmíða- iðnaði þar sem sveiflur í veiðum geti orðið mikilar. Á vísan sé því ekki að róa í smíði fiskiskipa eingöngu. ÆGIR 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.