Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1998, Side 36

Ægir - 01.10.1998, Side 36
Brœðumir Guðmundur og Eiríkur Víg- lundssynir, eigendur Vélsmiðju Orms og Víglundar. Næg verkefni fyrir stóru flotkvína -segja brœðurnir Eiríkur og Guðmundur hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði Fvffd er slœmt að þurfa að horfa upp á kvína liggja ónotaða mánuð eftir mánuð. Það kostar vitaskuld mikla peninga en við erum bjart- sýnir á að fá þau verkefni sem við þurfum til þess að reksturinn gangi upp þegar við komum henni ígagnið. Markaðurinn er fyrir hendi og við þurfum bara að ná í einhvern hluta þeirra sem sigla utan með skip stn í slipp. Við erum samkeppnisfœrir ígœðum og verði en þurfum bara að fá tœkifæri til þess að sýna mönnum fram á það. Stundum halda menn nefnilega að þeir séu að spara sér peninga með því að sigla utan en hafa þá kannski ekki reiknað dæmið til fulls,"segja bræðurnir Guðmundur og Eiríkur Víglundssynir sem reka Vélsmiðju Orms og Vtglundar í Hafnarftrði. Bræður þessir komust í fréttirnar fyr- ir rúmu hálfu ári þegar þeir fluttu til ís- lands risaflotkví sem lyftir alls 13.500 tonnum. Kvíin skemmdist á leiðinni til Islands eftir að hafa slitnað aftan úr dráttarbáti og hrakist í stórviðri um tíma. Skammt er síðan tryggingamál voru gerð upp og segjast þeir bræður ekki hafa farið eins vel frá því máli og þeir hafi vonað. Til stóð að taka kvína í notkun nú í haust en ljóst er að fram- kvæmdum á hafnarsvæðinu verður 36 M3ÍIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.