Ægir - 01.10.1998, Page 38
\ <5
Hér má sjá flotkvíar Vélsmiðju Orms og Víglundar. Sú minni er nœr en stóra kvíin fjœr.
geri þeim kleift að sjá a.m.k. nokkra
mánuði fram í tímann. Því sé ekki til
að dreifa í dag.
Aðspurðir um samkeppnisstöðu
þeirra gagnvart erlendum skipasmíða-
stöðvum segja þeir að hvað varðar
gæði séu þeir samkeppnishæfir í allri
vinnu. Meiri spurning sé um verðið
þar sem launakostnaður sé svo miklu
hærri hér á landi en t.d. í Austur-Evr-
ópu.
Þarflausir styrkir
„Að mínu viti þurfa íslensk verkalýðs-
félög að svara því hvers vegna þau
vilja heldur að verkefni séu flutt úr
landi en að erlent vinnuafl sé flutt
hingað tímabundið til þess að vinna
við ákveðin verk. Við myndum geta
greitt þeim töluvert hærri laun en þeir
fá heima fyrir en ég sé enga ástæðu til
þess að borga þeim samkvæmt ís-
lensku launakerfi. íslendingar eiga að
sitja fyrir en ef við náum ekki að
manna öll verkefni eigum við að flytja
inn ódýrt vinnuafl," segir Eiríkur.
Eiríkur og Guðmundur segja þessa
umræðu þurfa að komast upp á yfir-
borðið. Nauðsynlegt sé að spyrna við
fótum til þess að reyna að ná í eitt-
hvað af þeim verkefnum sem fara úr
landi, mörg hver meira að segja án út-
boðs.
„Við gerum síðan þá kröfu til ríkis
og sveitarfélaga að hætt verði að
styrkja þennan iðnað. Það skekkir
verulega samkeppnisstöðuna þegar
ákveðin sveitarfélög eru að styðja
beint við bakið á fyrirtækjum sem við
erum að keppa við og við segjum að
þessir styrkir séu algerlega óþarfir.
Þessi iðnaður hefur sýnt það að und-
anförnu að hann getur vel staðið á
eigin fótum. Okkur hefur ekki enn
fundist ástæða til þess að kæra til sam-
keppnisyfirvalda en við munum svo
sannarlega hugsa okkur gang ef ekki
verður látið af þessum styrkjum," segir
Eiríkur.
Eiríkur og Guðmundur segja mik-
inn uppgang vera í útgerðinni og mik-
ið þurfi að vinna í viðhaldsmálum þar
sem flotinn sé orðinn gamall. Þeir sjá
því fram á næg verkefni á næstunni og
hlakka til þess að geta tekið nýju
kvína í gagnið með vorinu.
FYLGIST NAKVÆMLEGA MEÐ
~Ln
AFGASMÆLIR
Fylgist nákvæmlega með.
AT
Getur
komið
viðgerðir á vél.
MDvélar hf.
SMIÐJUVEGUR 28, Pósthólf 597 - 200 Kópavogi - Sími: 567 2800 - Fax: 567 2806
FYLGIST NAKVÆMLEGA MEÐ
38 ÆGIR